Blogg
29.10.2007
Halloween update

Við Beckhamhjónin mættum nú frekar snemma á svæðið og svona til að byrja með vorum við mjög dugleg við að útskýra hvað við vorum fyrir þeim fjölmörgum Könum sem vita ekki hver Beckham er!!! Ok, ég fyrirgef þeim nú kannski þar sem ég vissi heldur ekki hvað helmingurinn af fólkinu var. Margir voru einhverjir karakterar úr bandarísku sjónvarp og við höfðum notla ekki hugmynd um hverjir það voru nú eða einhverjar íþróttahetjur. Annars fékk ég þá spurningu seint um kvöldið frá einum Indverja-bekkjarfélaga mínum af hverju ég væri ekki í búning! Með risastór sólgleraugu, skítabrún, með gervineglur og í fleygnasta bol sem ég hef verið í á ævi minni (og þá þarf nú mikið til)! Já frekar gott impression sem allir asísku bekkarfélagarnir hafa nú á mér sem voru ad djamma með mér í fyrsta skipti og halda að ég sé bara svona vanalega á djamminu, hehehehe
Talandi um alla Indverja vini mína. Ætli mín hafi ekki verið að drekka dry vodka með nokkrum þeirra sem endaði með því að einn ældi út um allt og annar DÓ (og ég sem hélt að þeir væru bara að reyna að fylla mig
) Og þá er ég ekkert að tala um svona, "æ hann dó" dæmi heldur versta case sem ég hef lent í!!!! Gaurinn var gjörsamlega rænulaus í þriðja veldi og endaði það með því að tveir sjúkrabílar mættu á staðinn og allir voru í svaka sjokki.Dagurinn í dag fór svo í verstu Íþökuþynnku sem ég hef lent í hingað til. Finnst það nú samt ekki skrítið þar sem ég er nú á sérstöku fæði þessa dagana fyrir tónleikatúrinn í næsta mánuði og hafði því borðað mjög lítið um daginn! Var alveg ómöguleg framan af degi og beilaði feitt á Íslendingagöngunni. Dave fór því án mín að ganga upp að einhverjum fossi með nokkrum Íslendingum hérna en hann tók nóg af myndum.
Jæja best að fara að fá sér kvöldmat svona eins og 5 uinoa-grjón og 2 edamame-baunir
Victoria
23.10.2007
Halloween
Nú er Halloween á næsta leyti, nánar tiltekið 31 október. Og Kanarnir eru alveg hrikalegir hrifnir af þessari "hátíð". Auðvitað verðum við að finna okkur búninga fyrir þennan fögnuð.
Okkur er boðið í Halloween partý núna á laugardaginn, en við erum alveg hugmyndalaus. Þannig að okkur datt í hug að fá hugmyndir frá ykkur lesendur góðir. Nú er bara að kommenta eins og vindurinn


14.10.2007
Hawaii ferðasaga
Hæ núna er ég í 30,000 fetum á leiðinni
heim til Íþöku, ég er svona nokkrun veginn mitt á milli
Allavega þá kom hópurinn saman á
föstudaginn niðri á campus og keyrðum við frá Íþöku til
Flugið frá Honululu til Kona Airport var
svo 40 min, en það var eins og 2 min fyrir mig því ég steinrotaðist. Kona
flugvöllurinn er nú ekki stór en hann er einn flottasti sem ég hef komið á.
Hann er nefnilega alveg úti, það eru engir veggir, bara skýli.

Móttökurnar á flugvellinum voru ansi
vinalegar því að við fengum blómakransa af Hawaii-önskum sið og tvo glænýja
Ford Explorer-a til umráða meðan við vorum á eyjunni. Við vorum svo kominn upp
á hotel klukkan
Vöknuðum svo snemma á laugardeginum og
fórum og hittum the Developers, þ.e. fólkið sem er að byggja að þetta samfélag.
Svo eftir hádegi fórum við á staðinn sem að herleighetin eiga að rísa. Eins og
þið vitið þá er the Big Island of

Enduðum svo daginn á því að skella okkur á
ströndina og í hotel sundlaugina. Fórum svo út að borða saman með þeim tveim
prófessorum sem komu í ferðina. Fórum á stað sem var alveg í sjávarmálinu og
var maturinn æðislegur. Fórum snemma í bólið því sunnudagurinn var frídagurinn
okkur ætluðum við að leggja í hann klukkan

Á sunnudeginum lögðum við í hann snemma og
keyrðum suður eyjuna. Skoðuðum


. Ég get ekki sagt annað en að andrúmslofið sé illa lyktandi núna eftir appóló lakkrísinn
.Annars bið ég að heilsa öllu nær og fjær, og gangi öllum vel í því sem þið eruð að taka ykkur fyrir hendur.
Jæja ætla að taka sturtu og reyna að sofa inn á morgun.
Bestu kveðjur,
Bjarni
9.10.2007
Fall Break
Kominn tími á smá update héðan úr Íþöku á meðan karlinn er í chillinu á Hawaii:
Fór í fyrsta
prófið mitt hérna á fimmtudaginn og það var sko hressilega tekið á því eftir
það enda ekki á hverjum degi sem maður klárar sitt fyrsta próf í Cornell
Það er líka svo rosalega ódýrt að djamma á
fimmtudögum, endalaus tilboð á barnum og svona. Skrópaði svo í tíma á
föstudaginn (ég veit, ekki líkt mér!!) og kíkti í mollið með John og Kim. Keypti
mér fullt af nýjum fötum í GAP (enn og aftur ekki líkt mér að versla í GAP en
svon er þetta bara þegar úrvalið er ekki meira). Ohhhh get ekki beðið eftir að
komast í stærsta mollið í NY fylki, stefnan er sett á að fara þangað eftir
jólaprófin. Ok, það virðist langt þangað til en tíminn líður bara svo fáránlega
hratt og áður en ég veit af verð ég komin aftur í H&M aftur! Svo
lítur allt út fyrir að ég verði í New York City næsta haust þannig að stelpur,
þá getið þið kíkt til mín og við verslað almennilega og fengið okkur alvöru
kokteila, ummmm.
Annars er ég búin
að hafa það afskaplega rólegt hérna í "break"-inu mínu. Búin að sofa endalaust
mikið og dreyma fáránlega raunverulega drauma. Dreymdi m.a. að Oddný hefði dáið
í bílslysi og Rósa væri ólétt, svo Oddný: keyrðu varlega og Rósa: öryggið á
oddinn!! Horfði svo á Notebook í gærkvöldi og grenjaði eins og mongó,
hehehehehe. Horfði notla í tölvunni þar sem við eigum ekki neitt sjónvarp, ég
veit algjörir lúðar (Unnur, ekkert persónulegt!).
Fór á stelpudjamm
á laugardaginn með öllum vinkonunum mínum sem voru í bænum. Hmmmm við erum nú
reyndar svo fáar í stelpur hérna í FE prógraminum, hmmm já og ein ekki í bænum
svo við enduðum bara tvær, ehhehehehe, ég og Kim. Það var samt ýkt mikið stuð
en því miður var aðaldansstaðurinn lokaður þar sem það var fall break. Ég sem
var svoooo spennt að fara þangað í fyrsta skipti, hef ekki farið á neitt dans-gelgju-djamm
síðan ég kom hingað! Sakna Britneyjar alltof mikið þannig að ég var bara með
hana á fullu yfir plain vanilla útreikningunum mínum í dag.
Ert strax farin
að hlakka til að fá Bjarne aftur heim. Veit ekki hvort ég myndi meika það að
búa ein, myndi örugglega farast úr næringaskorti. Ég nenni aldrei að elda neitt
þegar ég er ein heim og þið sem þekkið mig vitið að þegar ég eyði pening í mat
þá langar mig bara í nammi. Sem betur fer keypti þessi elska fyrir mig
vítamíntöflur um daginn, KARAMELLUR MEÐ SÚKKULAÐIBRAGÐI, svo ég lifi þetta af.
Nú þarf ég bara að passa mig að taka ekki of margar karamellur á hverjum degi
.
Já, hmmm, verð rétt í lokin aðeins að svara fyrir mig í sambandi við kennarasleikju ásakanirnar. Í fyrsta lagi þá HATA ég kennarasleikjur. Það er allt morandi í þeim hérna, sérstaklega Indverjar, þeir eru laaaang verstir. Þessi kennari sem ég fór út að borða með er kínversk kona og hún var einmitt að hneykslast á því að ég sæti svona aftarlega og segði ekki neitt í tímum (þ.e.a.s. á milli þess sem hún talaði um hvað ég væri sæt og af hverju ég væri nú ekki módel). Hmmmmm, AFTARLEGA! Ok ég sit vanalega næst aftast eða aftast en það eru bara 4 raðir þannig að það er nú ekki það aftarlega!! Þyrfti líka að mæta hálftíma fyrir til þess að ná sæti á fremsta bekk jú eða bara setjast ofan á einhvera Asíugelluna. Svo mætti halda að það væri 100 dollara verðlaun fyrir hverja rétta spurningu sem maður svaraði, fólk keppist við að svara öllu sem kennarinn lætur út úr sér. Stundum minnir mig þetta á spilakvöld með gömlu Valsstelpunum þegar við erum allar öskrandi ofan í hvor aðra í Actionary (Vala og Oddný, þið yrðuð góðar í þessum tíma), ehhehehe. En hluti af ástæðunni fyrir þessu "keppnisskapi" nemenda er jú að ég þessum tíma er 20% af einkunninn "class participation", allir þurfa að vera með "name tag" á borðinu og láta taka eftir sér. Þessir viðskiptatímar eru svo fyndnir. Þegar maður heldur fyrirlestur þá þarf maður líka að vera fínt klæddur. Fannst ekkert smá fyndið þegar ég hélt minn fyrsta fyrirlestur, stóð þarna, "all dressed up" og reyndi að bulla eitthvað á ensku. Það var nú samt frekar mikil tilviljun að mitt umræðuefni var Nick Leeson og hrun Barings banka og nokkrum dögum áður var hann einmitt á Íslandi að halda fyrirlestur, töff töff! Ég skil nú reyndar ekki hvernig þessi maður gat verið laus úr fangelsi eftir aðeins 6 ár eftir að hafa sett einn elsta og virtasta banka Bretlands á hausinn með endalausum lygum og svikum. Og í dag vinnur hann við að halda fyrirlestra um áhættustýringu og hvernig eigi að höndla stress, svo sannarlega Árni Johnsen Bretlands!!
Jæja, komið gott í billi. Hef því miður engar skemmtilega myndir (þó ég viti að myndir gleðja Steinþór minn!). Bjarni bætir úr því þegar hann kemur til baka frá Hawaii á miðvikudaginn!Bæjó, Liz
P.s. Ok Ingunn, ég er kannski pínku kennarasleikja á minn hátt

5.10.2007
Brottför
Nú er ég að fara að pakka fyrir Hawaii ferðina sem ég er að fara í eldsnemma í fyrramálið. Við leggjum í hann upp til Syracuse klukkan 7:00 a.m. og fljúgum þaðan til Newark Airport sem er í New Jersey, þetta er bara klukkatíma flug. Svo tekur monster flug við. Það er ca. 10 tíma flug frá Newark til Honolulu. Ætli ég biðji ekki einhverja flugfreyjuna að handrota mig rétt eftir flugtak svo að ég tapi ekki vitinu í þessu flugi
. Svo er síðasta flugið frá Honolulu yfir til Kona Airport sem er á The Big Island of Hawaii, síðasta flugið er bara 45 min. Svo er það örstuttur akstur á hótelið sem er við ströndina
. Þannig að maður reynir kannski aðeins að flexa bicep-inn/flagga bumbunni á ströndinni.Svo þegar við komum taka við heimsóknir á hina og þessa staði sem tengjast verkefninu. En sunnudagurinn er ekkert skipulagður þannig að hann verður bara nýttur á ströndinni eða við kíkjum á eldfallið sem er á miðri eyjunni. Svo var Andrew vél (vélaverkfræðingur) að segja að hann væri "sailor" og ætlaði ekki að láta þetta flotta svæði og vind fara fram hjá sér. Hann ætlar s.s. eitthvað að sigla og sagði að honum vantaði aðstoðarmann, ég var ekki lengi að bjóða fram hjálp mína. Þannig að ég geri ráð fyrir að ég verð háseti, svo er bara spurning hvernig sailor hann sé. Vona bara að það sé eitthvað stærra en hjólabátur, já eða gúmmíbátur.
Planið var að mamma og pabbi myndu koma þessa helgi, því í næstu viku er fall break, frí á mán og þrið. En þar sem ég er að fara til Hawaii urðum við að blása það af. Eeennnn mamma sendi okkur pakka með íslensku nammi til að gleðja okkur. Og núna er ég bara að vona að pakkinn komi ekki meðan ég verð á Hawaii því þá mun ég ekki sjá neitt af honum. Og þætti mér líklegt að iðnaðarmanna afsökunnin verði notuð. Þannig er mál með vexti að við getum pantað viðgerðarbeiðni og þá koma iðnaðarmenn meðan við erum í skólanum og gera við það sem þarf að gera við. Og Elísabet reyndi að telja mér trú um í þetta eina skipti sem þeir hafa komið að þeir hafi borðað allt nammið á heimilinu. Ég hef mínar efasemdir...
Nú er bara að vona að nammið komi, þegar ég verð kominn heim frá Hawaii.
Reyni að henda einhverju inn meðan ég verð á Hawaii. Lofa samt engu. Svo kem ég með myndir frá Hawaii í næstu viku.
Bestu kveðjur frá Íþöku,
Bjarni
ps. Beta biður að heilsa, hún var að klára próf.

