Blogg
27.1.2008
Strákarnir okkar!!!
Allt gott að frétta frá Íþöku. Við komum aftur á föstudaginn fyrir einni og hálfri viku. Elísabet fór á sitt Teachers Assistans námskeið (um þar síðustu helgi) þar sem henni var kennt að tjónka við erfiða nemendur og vekja áhuga á námsefninu. Gekk það vel að hennar sögn.

Á meðan á þessu
stóð var ég bara að slaka á og á sunnudeginu horfði ég á undanúrslitin í ameríska
fótboltanum með nokkrum strákum. Fyrri leikinn spiluðu New England Patriots gegn
San Diego Charges, þar unnu the Patriots sannfærandi. Þeir hafa ekki tapað
leika á tímabilinu og stefna hraðbyri að því að vinna Superbowl. Eeeennnn þeir þurfa fyrst að vinna "strákana
okkar" sem eru New York Giants. Þeir
(strákarnir okkar) unnu Green Bay Packers eftir spennandi leik. Ég var ekki mikill áhugamaður um amerískan fótbolta
áður en ég kom hingað út, en eftir þennan sunnudag er ég "big fan". Úrslita
leikurinn er svo næsta sunnduag, 2. febrúar.
Á þessum 6 tímum náðum við að slátra miklu magni af grilluðum
hamborgurum og skola niður öli með, þótt að það hafi verið ca. 10°C frost. Þess
má geta að leikirnir voru báðir spilaðir í -18 stiga frosti (0° faherheit) og með "windchill"
var mun kaldara, og ég hafði miklar áhyggur að þjálfari NY Giants væri að missa
andlitið af sér sökum kulda. Þið getið séð félagann hér fyrir neðan.

Þessi helgi hefur
verið fremur róleg þar sem við höfum verið að skanna námsefni annarinnar. Hins
vegar skelltum við okkur í bíó í gær, við höfum ekki gert mikið af því hingað
til sökum anna. En nú langar mig að spyrja ykkur að því hvaða stærð af poppi og
kóki Elísabet er með? Ein tilraun á mann.
Sá sem giskar á rétt vinnur sér inn bíóferð í Íþöku, popp og kók inclúderað.
Verðum í bandi
Kv. Bjarni
19.1.2008
Komin aftur
Ekki leiðinlegt að fara í endlaust af matarboðum, djamma um hverja helgi (Vegó var i MIKLU uppáhaldi) og sofa svo út og horfa á download í þynnkunni!! Hápunktur dvalarinnar var þó án efa brúðkaupið hjá Daða og Guðrúnu systur hans Bjarna. Rosalega flott athöfn þar sem hringaberarnir stóðu sig svo sannarlega vel og æðisleg veisla þar sem dansað var fram eftir nóttu. Núna veit maður alla vega hvernig á að gera þetta, hehehehehe

frekar upptekin á alls konar career atburðum. Á meðan ég chillaði á Wall Street nýtti BJ tímann vel og skoðaði nokkur vel valin söfn að hætti móður sinnar enda fellur eplið sjaldan langt frá eikinni. Ég var rosa ánægð með að hann hafi nýtt "frítímann" sinn svona vel þar sem ég er nú allt annað en þekkt fyrir að vera mikil safna manneskja. Man sérsaklega vel eftir því þegar ég var í útskriftarferðinni minni út í Kína og vorum við bekkurinn að skoða eitthvað svaka safn þá stakk ég af út af safninu, settist í tröppurnar og fór í sólbað. Þegar bekkurinn kom svo út af safninu klukkutíma seinna með safn-guide-inn fremstann í flokki sem hafði áhyggjur af því að það vantaði í hópinn tóku þau eftir því að það var kominn nýr "gripur" á safntröppurnar þar sem fólk var að mynda mig í gríð og erg - ekki skrítið þar sem það er nú algjört frumskilyrði að afklæðast aðeins ef maður er á annað borð í sólbaði
Uppáhaldskvöldið mitt var þegar við fórum á æðislegan sushi stað sem vinkona mín hafði mælt með (takk Nína!!) til að halda upp á þriggja ára afmælið okkar. Hann heitir Nobu Next Door og er rosa kósý og mæli ég feitt með honum fyrir alla NYC ferðalanga.
ldSpurning um að fara snemma í háttinn, er að fara á Teacher's Assistant námskeið alla helgina, fun fun fun. Maður þarf nú læra hvernig hafa eigi lúkkið á hreinu þegar maður fer að kenna sætum Asíubúum allt um Markov keðjur

- Beta refreshed
PS. Það eru komnar nýjar myndir með myndatexta að hætti Bjarni

