Blogg
27.3.2008
Spring Break

Eins og þið sjáið við Bjarni að gera góða hluti sem sundlaugavörður á hótelinu okkar og fréttir herma að hann vaði í atvinnutilboðum frá Tampa, ekki slæmt! Annars langaði mig bara að láta vita af því að við erum loksins búin að setja inn myndir frá spring break-inu. Ferðin var náttúrulega alveg æði pæði. Þegar við fórum í Bush Gardens rifjuðust upp gamlar minningar frá ferð minni með Fanneyju og familíu í garðinn fyrir 7 árum (ótrúlegt hvað tíminn líður!!!). Og já Oddný, auðvitað fór ég í stærsta rússíbanann, hann var GEÐVEIKUR! Trérússíbaninn var samt einna mest scary alveg eins og síðast). Við leigðum líka bíl og keyrðum niður til Sarasota og hittum Hödda og Guðrúnu sem voru í góðu chilli einnig í spring break-i (alla vega Guðrún).

Á leiðinni heim stoppuðum við svo í NYC og tókum eitt gott djamm með Elínu, Gígju og Guðrún Hlín. Hápunktur kvöldsins var þegar við æxluðumst inn á stað sem var bara með svörtu fólki (alveg klipptur út úr rappmyndbandi) en við höfðum ekki hugmynd um það áður en við komum inn. En þar sem Bjarni var búinn að borga sig inn þá gátum við nú ekki farið strax út og skelltum við stelpurnar okkur því á dansgólfið þar sem án gríns allir störðu á okkur, hahahahahah.

Nú er það bara hard core lærdómur fram á næstu helgi þar sem Guðrún (systir hans Bjarna) og Daði eru að koma í heimsókn, jeijjjjj get ekki beðið

Pís out homís
-Betalicious
18.3.2008
Florida
Hola!
Allt gott að frétta frá Florida, læt nokkrar myndir fylgja með:
Beta að flexa
Ég á leiðinni heim frá Adventure Island
Beta við einn stærsta rússíbanann í Busch Gardens
Við í einum bananum
Ég að kenna könunum handtökin á sleggjunni. Og auðvitað vann ég bangsa handa kærustunni
Kveðjur úr sólinni,
B&B
10.3.2008
Fullkomin afmælisgjöf / Perfect Birthday Present
Ætli "litla" systir mín, súpermódelið, gelgjubeibið og SPEGLADROTTNING med meiru, eigi ekki afmæli í dag, gellan orðin 17 ára!!!!
My younger sister, the hot model babe and the MIRROR QUEEN is 17 years old today!!!

Er mikið búin að vera að pæla í því hvað ég ætti nú að gefa sætu minni í afmælisgjöf. Skilyrðin voru bara að það væri eitthvað einfalt, með lágan/engan sendingakostnað og EKKI HÆGT AÐ SKILA. (Hnátan er sem sagt svoldið pikkí á hluti, sérstakleg föt get eg sagt ykkur og gengur ekki í hverju sem er!!). Eftir miklar pælingar fann ég loks hina fullkomnu gjöf:
Heimsfrægð á YouTube!!!!!!
For a long time I have thought about what birthday present to give my little sweetheart. The requirements were that it would be something simple, no or low sending cost and something she could NOT RETURN (the moppet is a little picky, especially regarding clothes and doesn't wear everything!!!). After thinking for a while I finally came up with the perfect present:
World fame on YouTube!!!!!
Elsku Steinunn, innilega til hamingju með daginn!!!!! Haltu áfram að vera svona mikil gelgja, lovjú!!!
Kossar og knús
-Big sys
Dear Steinunn, happy birthday!!!!!! Keep on being so amazing sister, love you!!!
Hugs and kisses
-Big sis
PS. Söngnámskeiðið hjá Birgittu Haukdal hér forðum hefur klárlega gert góða hluti Steinka, eða hvað......... 
PS: That singing course you took ages ago has definitely payed off, or what.........................
9.3.2008
Freezing rain með peanut butteri
Jæja, núna loksins er ég búin að upplifa þetta blessaða freezing rain. Mamma er endalaust búin að vera að tala um hvað sé mikið freezing rain hjá þeim í Kanada og þetta varð því mikill áfangi fyrir mig. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta snjór bráðnar á leiðinni til jarðar en frýs svo aftur um leið og hann kemst í snertingu við eitthvað (http://en.wikipedia.org/wiki/Freezing_rain). Þetta er notla bara töff, klaki umlykur allt eins og í ævintýrunum!
Jæja, kannski best að tala um eitthvað aðeins meira spennandi en veðrið. Já, ég er komin með æði fyrir hnétusmjöri enda ekki erfitt hérna í Bandaríkjunum þar sem peanut butter er út um allt og gjörsamlega í öllu. Það er hægt að fá allt með peanut butter bragði, I love it!!! (Já bannað að minnast á kaloríurnar í þessu, þetta er svooo hollt!)
Hmmm, þetta var kannski það allra skemmtilegasta umræðuefni, snúum okkur þá að hápunkti mánaðarins hjá mér til þessa. Keilukvöld með OR (Operation Research) deildinni!!! Þetta var æsispennandi mót og ég var klárlega ekki með þeim lélegustu (í fyrsta skipti!!). Bjórinn að gera góða hluti!!! Fór líka á hockey leik á móti Harvard sem var algjör snilld. Þetta var svona týpískur Fram-Valur slagur (skulum ekki nefna bikarúrslitarleikinn neitt frekar, er enn þá í sárum) en Harvard er víst aðal "óvinur" Cornell. Áður en leikurinn byrjaði hentu áhorfendur fisk inn á svellið (einhver gömul hefð til að niðurlægja Harvard), flestir náðu nú ekki að smygla inn venjulegum fisk heldur hentu bara hlaupfiskum en nokkrir náðu að smygla inn alvöru illa lyktandi flökum. Besta trikkid við að smygla alvöru fisk inn er víst að teypa hann við brjóstin á sér, það er víst ekki leitað þar, hef það í huga næst, hahahhaha.
Aðal FE gellurnar, ég, Kim og Urvashi
Starfsmenn að tína upp fisk af svellinu
Annars er ég ekki frá því að maður sé orðin svoldið skrítinn af öllum þessum Ító calculus, vonandi held ég þetta út, aðeins 4 lærdómsdagar eftir í spring break!!!
Kveð að sinni,
-Miss Peanut Butter lover #1
PS. Bjarni er alltof busy til að blogga, fór á bretti í gær, hockey leik áðan og er núna á djamminu, hmmmm erfitt líf hjá stráknum 

