Blogg

14.4.2008

Nýju klámhundarnir

Fór á tónleika í gær hjá hljómsveit sem heitir The New Pornographers eða nýju klámhundarnir eins og ég kýs að kalla þau. Hafði ekki hugmynd um hvaða hljómsveit þetta var áður en ég fór en þetta er víst frekar vinsæl hljómsveit hérna í Ameríkunni. Ástæða þessa bloggs er einmitt sú að mig langaði að tékka hvort ÞIÐ, lesendur góðir hefðuð heyrt um þessa hljómsveit (Nýju klámhundarnir)?!?!?! Mín representar nebla ekki alveg hinn típíska "tónlistar-Íslending" þannig að ég gat ekki alveg svarað því hvort þessi hljómsveitir væri þekkt á Íslandi eða ekki

Alla vega þá voru þetta alveg stórfínir tónleikar enda allt annað að fara á svona "life - show". Finnst ég alveg hafa þroskast helling við að fara á svona "mature" tónleika. Get samt ekki sagt að ég sé alveg stigin upp úr Britney gallanum, spilaði m.a. Nylon fyrir stelpurnar um daginn en þær voru ekki alveg að digga þessar elskur, því miður...... 

Jæja, held þetta sé komið gott af mínum fyrsta tónlistarpistli,

-Britney Becks

PS. Var að panta flug heim í ágúst!!!! Kem heim þriðjudaginn 12.ágúst og verð í tvær vikur. Karlinn verður skilinn eftir í Ameríkunni þannig að mín hefur nægan tíma fyrir kaffihús, krílaskoðun og kreisí djömm - HLAKKA TIL

PPS. Það gengur notla ekki að setja inn færslu og hafa enga mynd! Læt eina mynd fylgja með af okkur stelpunum og Ricky. Þessi mynd er tekin á indverskri danssýningu, Banghra, þar sem Ricky var stjarna kvöldsins, bæði kynnir og flottasti dansarinn (alla vega fannst okkur stelpunum það). Annars voru allir dansarar í svona crazy búningum, bara töff.





Skrifað 14.4.2008 kl. 23:44 af Bjarna

Bein slóð á færslu

16 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.4.2008

Heimsókn G&D

Hello upper east siders!

Langar að byrja að segja að við erum á lífi hérna í Íþöku.  Núna erum við í þriðju viku eftir spring break, úff hvað tíminn líður hratt.  Það var nóg að gera í fyrstu vikunni eftir spring break og leið hún því mjög hratt. Svo á föstudeginum komu Guðrún systir og Daði mágur í heimsókn, okkar önnur heimsókn. Þau höfðu verið  í  New  York City frá því á mánudeginum.

Þau komu til Íþöku um 5 leytið á föstudeginum.  Við byrjuðum á því að draga þau í matarinnkaup, því aðvitað þurftu þau að sjá hvernig það er verslað í matinn hérna megin við Atlantshafið.  Seinna um kvölið fórum við svo á ágætis Sushi stað.  Hann er merkilegur að því leiti að maður kemur með sitt eigið áfengi.  Ég gleymdi að kaupa inn vín, þannig að við tókum bara kippu af Carlsberg með okkur, maður kann etta.  Samt er maður í rauninni algjör herramaður miðað við liðið sem mætir þarna með kassa af Bud Light eða Keystone (sem eru báðir mjög ódýrar og sóðalegar bjórtegundir)!


Enduðum svo bara á því að fara snemma í háttinn því við Beta vorum þreytt eftir vikuna og G&D voru þreytt eftir bílferðina og göngur fyrri daga í NYC.

 

Á laugardeginum vöknuðum við á skikkanlegum tíma og fengum okkur þennan fína morgunmat.   Í kjölfarið kíktum við í local mollið, alltaf gaman að kíkja þangað því að það er alveg skemmtilega hallærislegt fólkið þar.  En það skemmtilegasta við að fara þangað var auðvitað að keyra með toppinn niðri á blæjubílnum sem G&D leigðu til að komast til okkar.

 



Seinni partinn fórum við svo með deildinni hennar Elísabetar í ferð í Ithaca Beer Co þar sem við átti að fara í skoðunarferð og smökkun, endaði með því að við fórum bara í bjórsmökkun. Þar sem Daði fékk meðal annars viðurnefnið ?The Tank?, þótt að hann hafi verið ansi hóflegur í smökkuninni. 


Eftir smökkunina fórum við fjögur og fengum okkur að borða á þessum sérdeilsprýðilega pizzastað.  Enduðum svo á því að kíkja í partý og á barina. Fínasti dagur verð ég að segja.

Á sunnudeginum vöknuðum gríðarlega hress og fengum okkur pönnukökur með hnetusmjöri og sýrópi.  Eftir þennan staðgóða morgunverð keyrðum við til Taughannock Falls State Park og kíktum aðeins á náttúruna:

 

Því næst var haldið á vínekrurnar, því okkur vantaði eðalrauðvín með matnum:

Vorum komin heim um kvöldmatarleytið og þá var strax farið í það að elda steikurnar sem við höfðum keypt á föstudeginum. 


Eftir  að við höfðum legið aðeins á meltunni skelltum við í okkur í bíó og sáum 21.

Á mánudagsmorgninum fórum við Beta snemma í skólann því skólinn hafði nú verið vanræktur þessa helgi.  Náðum þó að kveðja G&D og svo renndu þau sér suður til NYC, þar sem þau héldu áfram að njóta lífsins.

Verð bara að segja þetta er ein af mínum bestu helgum hérna að í USA, náði að slappa vel af og eiga quality time með part af fjöskyldunni.

Annars er byrjað að hlýna vel hérna í Íþöku, búið að vera í kringum 15°C frá því á sunnudag . Vona að þetta haldi svona áfram.

Annars er ég ansi sáttur með mína menn í Manchester United sem eru komnir í undanúrslit í Meistaradeildinni.  Þetta verða ansi spennandi undanúrslit þar sem maður þekkir öll fjögur liðin mjög sem eftir eru. Horfði svo líka á úrslitaleikinn í bandríska háskólakörfuboltanum á mánudagskvöldið þar sem Kansas vann Memphis eftir að hafa verið 9 stigum undir þegar 2 min voru eftir.

 Vonandi að allir hafi það gott!

Bestu kveðjur frá Íþöku,

Bjarni

 PS. 123.is er með eitthvað vesen þannig að allar myndirnar í færslunni birtast ekki, eir eru að breyta kerfinu hjá sér. Greinilegt að þeir eru með einhverja amtöra sem eru að vinna í þessu...


PPS. Þið getið prófað að refresha síðuna þá ættu aðara myndir að birtast.

 

Skrifað 10.4.2008 kl. 2:33 af Bjarna

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 44
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 98497
Samtals gestir: 41909
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:58:52