Blogg
29.5.2008
SumarFRÍIÐ: Íbúðarleit, gamla settið í heimsókn og Kanadaheimsókn
Pabbi, þessi
færsla er fyrir þig:
Mín var nú búin
að lofa smá færslu um hvað hefur drifið á daga okkar eftir að við kláruðum skólann
og hér kemur hún 
Laugardagurinn fór síðan í að skoða íbúðir með brókernum okkar, henni Karen. Það gekk bara ágætlega þó að flestar þessara íbúða líti frekar út sem kústaskápar heldur en íbúðir, en svona er þetta víst niðri á Manhattan nema maður sé tilbúinn að borga fáránlega mikið. Á laugardagskvöldið var svo loksins hægt að fagna próflokum á almenninlegan hátt og sunnudagurinn fór því að mestu í feita þynnku.
Á
sunnudagskvöldið komu svo foreldrar hans Bjarna, Lilja og Jón til New York. Á mánudeginum
fundum við svo loks sæta íbúð á upper east sem við stukkum á. Bjarni er nokkuð viss um að hann fái aukahlutverk í Gossip Girl! Hún er mjög lítil
og krúttleg (samt stærsta íbúðin sem við skoðuðum), stofa og eldhús í sama rýminu
og svo eitt rúmgott svefnherbergi og svo baðherbergi. Við gátum því lagt í hann heim til Íþöku seinni partinn á mánudeginum. Á þriðjudeginum keyrðum við svo
til Kanada og skoðuðum Niagara Falls. Veðrið var að vísu ekkert sérstakt en samt
rosalega gaman að sjá loksins þessa margumtöluðu fossa.
Við komum svo til
Ottawa á hádegi á miðvikudeginum í svaka veislu hjá mömmu. Hápunktur dagsins
var svo án efa úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni þó að það hefði nú verið
skemmtilegra ef United hefði bara klárað leikinn í venjulegum leiktíma!!! En
sigur er alltaf sigur þó svo að ég hafi vorkennt John Terry ekkert smá mikið! Þar
sem að leikurinn fór í framlengingu misstum við af leiknum hjá Steinunni en hún
er víst orðin quarterback í football liðinu í skólanum sínum (og það ekki stórslysalaust,
var send með sjúkrabíl upp á sjúkrahús í síðasta leik með heilahristing og læti....)
Við bættum það nú upp á fimmtudeginum með því að mæta á frjálsíþróttamót hjá
henni þar sem hún keppti í spjótkasti. Það var mjög gaman að fylgjast með henni
og verð ég nú að viðurkenna að maður er nú svoldið stolltur af litlu systir,
enda lenti hún í 2.sæti (var að keppa við einu ári eldri, annars hefði hún
unnið) 
Á föstudaginn héldum við svo heim á leið eftir vel heppnaða dvöl í Kanada. Um helgina var síðan útskriftin hjá Bjarna eins og þið vitið en ég var bara að fatta áðan að ég gleymdi að gefa honum útskriftargjöf, ÚPS!! Jón og Lilja flugu svo heim til Íslands á mánudeginum og vil ég nota tækifærið og þakka þeim kærlega fyrir æðislega heimsókn og gjafirnar
. Undanfarna daga höfum við Bjarni svo bara haft það súper-nice. Erum að pakka og þrífa í rólegheitunum með góðum pásum þar sem við horfum á The Office eða njótum veðurblíðunnar. Ég fer síðan til New York á laugardaginn en Bjarni kemur keyrandi með allt draslið okkar á þriðjudeginum þar sem við fáum ekki íbúðina fyrr en þá. Það eru því spennandi tímar framundan
(Og þá er ég að tala um eftir ískápsþrifin, jakk!!)Vonandi hefur þetta svalað þorstanum þínum pabbi, annars sendir þú mér bara línu

XOXOXO
-The Gossip Girl Wannabe
PS. Það eru komnar fullt af nýjum myndum með myndatexta. Isssss, maður er sko að standa sig í blogginu þessa dagana!!
26.5.2008
Meistari Bjarni
(Enda ekki annað hægt fyrir alvöru þjóðháttafræðing).Fleiri myndir eru í myndaalbúminu.
Kv.
Stolta kærastan
P.S. ég kem svo með færslu af fríinu okkar með gamla settinu, New York og Canada í sem fyrst

15.5.2008
Ómæ, ómæ!!!
Hélt ég myndi ekki lifa þetta af, sérstaklega í fyrradag þegar Bjarni kláraði, það var fáránlega gott veður og ég fór í göngutúr og fann þetta:
Já, það er ekki nóg með að það sé blaknet út í garði, tennisvöllur, fótboltamörk og körfuboltavellir í 5 mínútna fjarlægð þá þurfti mín að finna þennan ótrúlega girnilega strandblaksvöll rétt hjá!!! Já þetta hafa verið erfiðar tvær vikur sem einkenndust af innipúkastemningu þar sem hápunktur dagsins var þegar e-r setti inn nýjar myndir á barnalandssíðuna sína, ehhehehehehehe.
En nú er það bara penthouse leit á Manhattan á morgun!! Planið er að leggja í hann eldsnemma í fyrramálið þannig að það er ekkert djamm í dag/kvöld...... Kannski bara fyrir bestu þar sem ég þarf að fara í drug test og fingerprint scan á morgun meðan Bjarni hjálpar Kim að flytja inn áður en við getum byrjað að skoða íbúðir. Annars er ég farin að halda að Bjarni sé spenntari fyrir rafmagnstækjunum sem við munum kaupa en íbúðinni sjálfri! Hann fór sér strætóferð í gær bara til að fara í Best Buy að tala við karlana þar um hinar og þessar gerðir flatskjáa, já hann er algjört nördakrútt þessi elska
Jæja, best að fara að gera mig sæta fyrir klippingu (fyrsta skipti sem ég fer í klippingu annars staðar en á Íslandi, þetta verður forvitnilegt........)
Kv.
Spennta stúlkan
PS. Hvernig ætli maður segir "að særa hár" (trim?) og "smá styttur" á ensku, hmmmm.....
7.5.2008
New York City
Þá er ég kominn með vinnu í NYC. Þannig að það má gera ráð fyrir því að ég verði í USA allavega í 1 ár í viðbót. Ég byrja væntanlega að vinna 16. júní. Þetta er risastórt verkfræðifyrirtæki með 160 skirfstofur í 20 löndum. Mín skrifstofa er á Manhattan, hliðina á Madison Square Garden. Á kortinu hér fyrir neðan má sjá hvar mín vinna verður og svo höfuðstöðvarnar hjá JPMorgan þar sem Elísabet verður að vinna í sumar:
Þannig að núna er bara að klára skólann og svo að finna sér íbúð á Manhattan, verð bara að segja að ég er mjög heppinn að þurfa ekki að finna íbúð í stórborginni Reykjavík. Það getur víst verið frekar erfitt.
Bless í bili. Látum í okkur heyra þegar við verðum búin í skólanum, 15 maí.
Bestu kveðjur til allra,
Bjarni
PS. Ég veit að þú ert að lesa þetta Jón Ásgeir, þannig að láttu mig vita ef þú getur lánað mér íbúðina þína á Manhattan, ég mundi meta það mikils. Ég lofa því að ég mun fara vel með hana.
1.5.2008
Ókindin tvö?!
Þegar ég vaknaði í gærmorgun tók ég eftir því að baðkarið var óvenju skítugt en pældi ekkert meira í því (hélt bara að Bjarni hefði verið að bursta svona allhressilega af skónum sínum eða eitthvað). Seinni partinn þegar ég kom svo í sakleysi mínu heim úr skólanum fann þessa svaðalegu fýlu þegar ég opnaði útidyrahurðina. Þegar ég kom inn á bað var um 10 cm hátt drulluskítugt vatn í baðinu, fullt af ógeði. Þá gerði ég mér loks grein fyrir að niðurfallið væri orðið að "uppfalli" og það var sem sagt að flæða upp í baðið. Ég tók þá bara mitt venjulega gelgjukast og lokaði baðherberginu og ætlaði bara að bíða eftir því að Bjarni kæmi heim og lagaði þetta (kappinn kominn með svo góða reynslu af klósettstörfum og svona...). Seinna um kvöldið fóru svo undarleg hljóð að heyrast þannig að ég gat ekki staðist mátið og kíkti aftur inn á bað og tók þá eftir því að í hvert skipti sem ég eða einhver annar í húsinu sturtaði niður þá BYRJAÐI AÐ FLÆÐA SKÓLP UPP Í BAÐKARIÐ!!!!! Áður en ég vissi af var baðkarið fullt af flæðandi ógeði, þar með talið ókindinnni sem hafði risið upp frá dauðum, að vísu í mörgum litlum pörtum en alveg jafn scary!!
Bjarni kom svo loks heim síðla kvölds til þess að hughreysta mig en sameiginleg ákvörðun var þó að ráðast ekki að ókindinni heldur fá professional hjálp sem reddaði svo öllu í dag

Fyrir utan þessa árás er apríl mánuður búinn að vera alveg æðislegur hérna hjá mér í Íþöku. Sumarið er loksins að koma, þannig að ég er búini að taka fram alla sumarkjólana, sólgleraugun og hlýrabolina, og reyni að læra sem mest undir berum himni. Ótrúlegt hvað gott veður hefur jákvæð áhrif á mann. Er líka búin að taka hressilega á því í djamminu, það er alveg hættulegt hvað maður getur vanist því fljótt að vera með þynnkuhausverk á virkum degi
(Heiðrún, ég er að reyna að halda í við þig!). Svo er litla þjóðhátíðin okkar (útihátið/tónleikar) í Cornell á föstudaginn, Slope day, þar sem verið er að fagna síðasta skóladeginum. Formleg dagskrá byrjar um hádegi en mér er boðið í kampavíns-bröns snemma um morguninn. (Þetta minnir mig ekkert smá mikið á Nemó - Ylfa ég man sérstaklega eftir morgunmatnum heima hjá þér sem var alveg æði!) Ég skrapp líka til New York um daginn í dagsheimsókn til JPMorgan. Ég ákvað að taka rútuna eldsnemma deginum áður og náði því góðum shopping day á 5th avenue. Að vísu bilaði rútan in the middle of nowhere og seinkaði það ferð minni um 2 tíma þannig ég þurfti heldur betur að taka powershopping þar sem ég hafði aðeins 6 tíma til að versla!! Kim og Urvashi krössuðu síðan hótelherbergið mitt þar sem þær voru að leita að íbúð á Manhattan og fór mjög vel um okkur allar í king size rúminu mínu

Da da raaa, ég má nú ekki gleyma að minnas á mál málanna, Meistaradeildina! Þökk sé Daða þá get ég nú horft á alla fótlboltaleiki sem ég vil í gegnum netið og er mér farið að líka vel við þessa kínversku þuli sem lýsa leikjunum! Man. Utd. komst notla áfram í gær, alveg æði pæði!! Verð svo eiginlega að viðurkenna að ég hélt með Liverpool í leiknum í dag (vorkenndi svo Riise í fyrri leiknum!) og vá hvað Drogba fer í taugarnar á mér!! Ég ætla nú reyndar ekkert að hafa það lengra, en þið sem eruð sammála mér getið lesið "áhugaverða" bloggfærslu hjá Eini þar sem hann lýsir yfir ást sinni á ungfrú D(rama queen!)

Annars heldur kroppasýningin áfram:
Later
-Lizzy
PS. Það eru komnar nokkrar nýjar myndir

