Blogg
25.7.2008
Nammi namm!!!
Nammi namm!!
Nú sit ég heima
eftir óvenju stuttan vinnudag þar sem deildin mín er að flytja yfir götuna og
við þurftum við því að hætta vinnu um 4 leytið svo hægt væri að flytja draslið
yfir, ekki amaregt! Til að toppa nettan föstudag sit ég hér og narta í nammi sem tvíburarnir (Didda og Gugga) skildu eftir þegar þær fóru (takk fyrir
allt íslenska nammið og líka allt "hitt" nammið stelpur!) Þær komu sem sagt í
heimsókn á miðvikudaginn fyrir rúmri viku. Þær tóku svo góðan shopping dag á
fimmtudeginum meðan við Bjarni vorum í vinnunni. Eða ætti ég frekar að segja góðan
göngutúr þar sem þær villtust all hressilega! En þær fundu alla vega H&M á "laugarveginum"
(5th Avenue) sem hefur eflaust bjargað deginum. Ég fékk síðan frí í vinnunni á
föstudeginum sem var alveg æði pæði!! Ekki láta það fréttast samt þar sem
sumarstarfsmenn eiga ekki að fá frí en ég er með svo nettan yfirmann. Við tókum
nettan túristadag á föstudeginum, frelsisstyttan, wall street og fullt af búðum.
Þessar dúllur geta nú alveg eitt dágóðum tíma inn í búðum og náði ég meira að
segja að sofna í einni, hahahahah.

Þar sem
stelpurnar voru nú að koma hingað í útskriftarferð þá splæstum við Bjarni í
netta útskriftargjöf sem við "gáfum" þeim á laugardeginum. Það var sem sagt rúta og miðar
á fótboltaleik, New York Red Bulls gegn LA Galaxy. Ég náði því loks að uppfylla
gamlan æskudraum og sjá GOÐIÐ MITT, HERRA BECKHAM spila!!!!! Við hituðum okkur
upp fyrir leikinn eins og góðum Ameríkönum sæmir, nokkrir bud light og
skallakeppni. Leikurinn var mjög skemmtilegur og endaði að lokum 2-2 (þó að ég hafi nú
meira verið að horfa á Beckham en leikinn....). Beckham var reyndar allt í öllu í þessu Galaxy liði, stjórnaði alveg spilinu og allt flaut í gegnum hann 


Ég og Didda
skelltum okkur svo á djammið um kvöldið meðan Gugga og Bjarni vorum heima, bæði
hálf slöpp. Ég var nú ekki lengi að kenna Diddu beer pong, einn allra vinsælasta
og skemmtilegasta drykkjuleikinn hérna úti. Ætli hún hafi ekki staðið sig jafn vel í
leiknum og í boltanum hérna áður fyrr, og rústuðum við öllum leikjunum okkar þökk sé henni
(nema síðasta.....enda orðnar vel hífaðar og að keppa við einn edrú gaur!).

Á sunnudeginum fórum við svo í sólbað í Central Park ásamt því sem stelpurnar héldu áfram að versla (enda með lengsta innkaupalista sem sögur fara af!!!).
Jæja, verð að fara að taka til hérna og kaupa meiri bjór, von á næsta gest innan hálftíma!!!! Það er sko nóg að gera á hótel B&B en spurning hver næsti gestur er?!?! Sá sem giskar rétt fær kokteil að hætti hússins þegar hann kemur í heimsókn. Svar kemur í næstu færslu.....
Kv.
Beta BECKS
23.7.2008
Lífið er yndisleg!
Tvibbaheimsókn og þetta:
Þarf maður eitthvað að segja meira?!
Kem með alvöru update þegar ég verð búin að jafna mig almennilega :)
-Beta BECKS
6.7.2008
5th of July
Í gær var þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna og auðvitað nutum við góðs af því með því að fá frí í vinnunni og komast í partý! Við fórum í gleðskap hjá Kim vinkonu hennar Elísabetar. Fínasta teiti og fínasti félagsskapur þar á ferð. Aðal tilhlökkunarefnið hjá flestum þarna var flugeldasýningin, við vorum ekki svo spennt þar sem við erum auðvitað vön svona vitleysu. Flugeldasýningin var að vístu ágæt eftir allt saman, nema að á tímbili sjáum við ekki neitt fyrir reyk því að það var blanka logn meðan á sýningunni stóð.
Annars er allt gott að frétta af okkur og það gegnur vel í
vinnunum hjá okkur báðum. Annað
fréttnæmt er það að Óðinn frændi og hans dama, Lóa, komu í 6 daga heimsókn í þar síðustu
viku og fóru núna á mánudaginn. Okkur
þótti mjög gaman að fá þau og við vonum að þau hafi notið dvalarinnar (nokkuð
viss um að þau hafi gert það). Við
nýttum tímann ansi vel meðan þau voru hérna.
Sáum þessa helstu túristastaði, þau versluðu "svolítið", fórum oft út að
borða, kíktum aðeins á næturlífið og nutum veðursins í botn. Á laugardeginum sem þau voru hérna leigðum
við okkur reiðhljól og hjóluðum milli fossanna hans Ólafs Elíassonar. Sökum mikils hita og sólar styttum við
leiðina aðeins en náðum engu síður að hljóla yfir Brooklyn og

Svo lentu þau í ansi skemmtilegri uppákomu á mánudeginum sem þau fórum heim. Þegar þau voru í síðustu innkaupunum á Fifth Avenue þá sáu þau mikið af fólki hjá Rockefeller Center, þau ákváðu að kanna hvað væri að gerast og þá var verið að kynna bandaríska ólympíuliðið í körfubolta! Ekki leiðinlegt fyrir Óðinn þar sem hann er huge körfubolta fan. Þannig að þau sáu allar helstu NBA stjörnurnar á einu bretti, þar á meðal Lebron James, Kobe Bryant og fleiri.

Annars erum við búin setja inn myndir frá heimsókninni þeirra.
En jæja best að fara að hætta þessu því ég fékk mikið magn
af tómötum gefins hérna út á götuhorni, ætla að
Bless í bili,
Bjarni
P.S. Hvað er gáfaðasta dýr jarðarinnar á eftir mannskepnunni? Ég er með mínar hugmyndir.
P.S.S. er einhver með góðar uppskriftir sem inniheldur mikið af tómötum?

