Blogg

17.9.2008

September - my new favorite month!

Já, september er sko orðinn uppháhalds mánuðurinn minn.alla vega á þessu ári. Það er algjör snilld að vera hérna úti í Stóra eplinu í september og vera nýbyrjuð í skólanum. Ég meina hver myndi ekki hata að:

-         hafa milli 20-30 stiga hita (ekki of heitt, ekki of kalt)

-         þurfa aldrei að vakna snemma til að mæta í tíma

-         vera ekki í skólanum á miðvikudögum og föstudögum í þokkabót

-         fá bæði fjölskyldu og æðislega vini í heimsókn

-         kynnast fullt af nýjum NY Íslendingum

-         fara í happy hour og fá sér einn kaldan (jafnvel með kennaranum!) eftir tíma

-         rölta Wall Street á leið í skólann upplifa þetta brjálið sem er í gangi núna og vera KOMIN með vinnu

 

En ég veit að Adam verður ekki lengi í paradís......... og það á fljótt eftir að kólna svakalega, álagið í skólanum á eftir að aukast til muna, ég þarf að fara að kaupa mér kort í ræktina og hætta að lifa/borða/drekka eins og ég sé í endalausu fríi.

 

Þessi mynd af mér er mjööög lýsandi fyrir síðustu vikur. Ég í góðu chilli í Beer Gardens sem er alveg niður á tá þar sem hægt er að sjá Frelsisstyttuna og aðeins steinsnar frá skólanum mínum.

 


 

 

Það er mikið búið að vera um gestagang hjá okkur. Fyrst kíktu Pabbi og Nanna í heimsókn. Nanna var í vikuferð með vinkonum sínum og pabbi kom svo og hitti hana og gisti hjá okkur. Þó að pabbi sé ekki mikill túristi í sér (finnst best að liggja flatmaga á sólbekk ALLAN daginn) náðum við Nanna að draga hann á marga af þessu helstu túristastöðum. Minnistæðast var þegar við fórum á hlaðborð/tónleika hjá Harlem Gospel kórnum þar sem náðist ágætis "kirkju-stemmari" og við klöppuðum og sungum "ó happy day" hástöfum. Pabbi er nefninlega lúmskur aðdáandi, er þaggi pabbi?!?

 

Pabbs and Nancy



Hópurinn fyrir utan Harlem Gospel staðinn. Bjarni var svo elskulegur að skella sér fyrir aftan myndavélina.



Daginn eftir að pabbi og Nancy fóru komu Fríða og Harpa vinkona hennar af Skaganum. Þá var sko fljótt skipti yfir í Sex and the City gírinn þar sem sötrað var á ófáum Cosmopolitans að hætti alvöru New York skvísa. Stelpurnar voru hérna í viku og því höfðum við nægan tíma til að versla (Fríða keypti m.a. 5 skópör Á FYRSTA DEGI!), túristast og djamma. Fimmtudagsdjammið var sérstaklega æðislegt. Þá fórum við út að borða með Rabba og Bjarna (funheitir gæjar sem búa hérna í NY) í aðal djammhverfinu, Meatpacking District. Það kvöld endaði í algjöru rugli og tókst mér að slökkva á vekjaraklukkunni daginn eftir svo Bjarni greyjið svaf yfir sig en hann átti að mæta á námskeið morguninn eftir. Sem betur fer á hann svo nettan yfirmann sem hló bara að þessu!

 

 

Þessi mynd hérna hægra megin er tekinn rétt fyrir eða eftir að við sungum/öskruðum NINU allhressilega við mikla athygli


Á föstudagskvöldið var ákveðið hætta við að fara fancy út að borða og hafa bara kósý-kvöld. Þar tókst mér að setja nýtt Íslandsmet í djúpuáti!! Um laugardagskvöldið var svo aftur djammað þar sem ljóskurnar FJÓRAR fengu aðeins of mikla athygli í bænum!!!!!

 


Auðvitað með cosmo í höndemoticon


Á sunnudeginum stakk Bjarni svo af til Tennessee á námskeið í næstum viku (fæ ekki kappann aftur heim fyrr en á föstudaginn) en við gellurnar fórum í Sex and the City túrinn sem var æðislegur!!!  Ótrúlega gaman að koma hafa tour guide sem þylur í mann fullt af fróðleik (sumt merkilegra en annað) og skoðuð eru mismunandi hverfi Manhattan. Í gærkvöldi skelltum við okkur svo á flottan rooftop bar og sötruðum enn einn Cosmo-inn emoticon



Stelpurnar fóru svo áðan og þá myndi maður nú halda að ég yrði ein í góðu chilli þangað til ég fæ Bjarnann minn aftur en nei, ætli pabbi og Nancy komi ekki aftur Í KVÖLD (voru í góðu chilli í Karabíska hafinu þar sem pabbi hefur sýnt sinn rétta túrista-anda), hahahah. Það eru bara jafn miklar sviftingar á hótel B&B og á markaðnum í dag!!! Ætla nú reyndar ekki að fara að ræða markaðinn hérna, er notla ekki talað um annað hérna í skólanum og í fréttum og fólk er bara í hálfgerðu shjokki.


Jæja, spurning um að laga aðeins til hérna áður en næstu gesti koma.


Bæjó

-Beta Lehman saknari


PS. Verið nú dugleg að kommenta og bögga Bjarna fyrir að blogga aldrei emoticon 


PPS. Já guð, var næstum búin að gleyma. Eftir mikið djúpuát hófust miklar rökræður um hvernig ætti að beygja orðið DJÚPUR. Ég hugsa þetta sem kvenkynsorð í fleirtölu: Hér eru djúpur, djúpur.... En stelpurnar segja að þetta sé karlkynsorð í eintölu og því: Hér er djúpur um DJÚP! What??!?! Er þetta ekki bara e-ð sem landsbyggðarpakk (ekki illa meint sætu gellurnar mínar) segir eða er ég svona steikt??!?!?!






Skrifað 17.9.2008 kl. 12:26 af Bjarna

Bein slóð á færslu

21 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.9.2008

Sumarið á enda

Helu, helu everyone. I'm back from Iceland. Ohhhh tessi ferd var notla bara aedi paedi i alla stada. Hitti fjolskyldu og vini, fullt af djammi, svefni og overdose af Olympiuleikunum. Gaeti ekki hafa verid betra..... nema kannski ef Bjarni hefdi geta komid med en vid vorum ad kaupa mida heim um jolinn adan tannig ad hann getur strax farid ad hlakka til :) Medfylgjandi eru nokkrar Islandsmyndir en eg setti inn eitt Islands-album og hafdi eg ur nog af myndum af velja tar sem eg var gjorsamlega ad missa mig a velinni heima!!





Annars sit eg nu sveittari en elgur inn a skrifstofunni hja Jacobs og tykist vera ad gera homework. I dag er nefninlega fridagur i Bandarikjunum, Labour Day en audvitad turfti kappinn ad vinna (hann er gjorsamlega omissandi :) tannig ad eg skellti mer bara med. Alltaf gaman ad hitta vinnufelagana hans Bjarna, serstaklega einn ad yfirmonnunum hans sem audvita splaesti lunch i hadeginu! Eini okosturinn er ad tad er ekki kveikt a loftkaelingunni um helgar og a fridogum til ad spara og tad er faranlega heitt herna.




Skolinn byrjadi hja mer sidasta fimmtudag og list mer rosa vel a tetta allt saman. Bara stud ad vera i timum nidur a Wall Street (fyrir utan ad subway ferdin lengist um c.a. 10 min) og ekki skemmir fyrir ad tad er ekki skoli a fostudogum. Vid forum nokkur milli tima a fimmtudaginn a bar og fengum okkur nokkra kalda, madur er ordinn haettulega vanur tessu "drink after work" og "happy hour sparnadi". Eins gott ad tetta verdi ekki vaninn tar sem eg er mikid i gotum seinni partinn og tad er ekki gaman ad vera ad pissa a sig i naesta tima a eftir vegna of mikils bjorthambs (vid skulum ekki einu sinni byrja ad raeda kaloriurnar!).


Heidrun, saeta krulludullan min var i heimsokn yfir helgina, en hun millilenti a leid sinni aftur til Seattle tar sem hun er i nami. Eg hitti hana og brodur hennar, Johannes (superflottur  flugmadur, ofurpabbi og staerdfraedigreiningar II snillingur to be), a fostudeginum i nett chill. Um kvoldid forum vid Krulla ut ad borda med Kim og svo var party heima hja Kim. Vid endudum sidan oll a dansgolfinu a Le Souk tar sem vid Islendingarnir (9 talsins) attum dansgolfid. Tad eru nefninlega massa margir Islendingar ad byrja i mastersnami i verkfraedi i Columbia og voru tau flest a djamminu med okkur.



Ein af tessum Columbia-Islendingum er Hildigunnur en hun og Asgeir kaerastinn hennar fengu ad gista hja okkur medan eg var heima og tar til hun fann ser saeta ibud a upper west side. Teir sem hafa ahuga a ad kynnast teim betur er bent a blogg-tengil sem eg var ad setja inn her til hlidar en eg maeli sannarlega med teim sem fyrirtaks vardhundum (enda bicepinn a Hildigunni ekkert slor!!) 

A sunnudeginum forum vid diversity-gellurnar (ljoshaerd-litil, dokkhaerd-stor og raudhaerd-mid) i godan gongutur i Central Park (okkur Heidrunu veitti ekki af, enda vel tunnar eftir djammid!!). Svo var haldid i verslunarleidangur tar sem vid Hildigunnur settum nytt Islandsmet i "bid i rod fyrir matunarklefa" i Forever21 og endad a pizzastad med Bjarna vinnualka.



Ok, nu er eg ordin eitt svitabad, spurning um ad fara inn a badherbergi og thurka ser....... (get nu samt ekki farid ad kvarta yfir 27 stiga hita og sol eftir ad hafa fengid halsbolgu af Islandsforinni godu)

-Beta sveitta


PS. Bjarni er greinilega of busy til ad blogga. Fyrir ykkur sem hafid ahuga a frettum af kappanum ta fylgir her med stuttur urdrattur:
Vika 1 sem Betan var a Islandi: Vinna 24/7 med occational dinner-hittingum med Hildigunni og Asgeiri sambylisparinu
Helgin: Bostonferd til Sigga tar sem BJ tapadi aleigunni i poker heima hja Olgu og Gardari
Vika 2 sem Betan var a Islandi: Namskeid i Spring House, Pennsylvaniu tar hann eignadist nyja bestu vini fra Detroit sem heltu i hann bjor OLL kvold
Helgin: Yankees leikur med Kidda Magg og VINNAaaaaaaaaaaaaaa

PPS. Var ad setja inn fullt af nyjum myndum, og kannski fa nokkrar myndir fra Bjarna ad lauma ser med svo endilega check it out!

Skrifað 2.9.2008 kl. 6:51 af Bjarna

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 62
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 98466
Samtals gestir: 41902
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 22:22:56