Blogg

17.12.2008

Meistari

Skrifað 17.12.2008 kl. 9:09 af Bjarna

Bein slóð á færslu

14 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.12.2008

Mamma í heimsókn

Hæ hæ,

Ég vil byrja á að þakka fyrir kveðjurnar frá síðustu færslu. Þessi mynd var tekin á leiðinni heim úr subwayinum og það var enginn í vagninum nema við Kim (enda klukkan ég veit ekki hvað....við vorum svo duglegar að læra). Þessi mynd hérna fyrir neðan er tekin kvöldið sem við gellurnar (ég, Kim og Urvashi) kláruðum lokaverkefnið okkar, hef sjaldan verið eins ánægð og ég var þegar við kláruðum verkefnið LOKSINS.



Annars er allt rooooosa gott að frétta. Mamma er búin að vera hérna yfir helgina og dekra alveg svakalega við mig :) Við erum búnar að versla fullt og sofa enn meira. Alveg svakalega gott að ná að slappa svona af eftir allt brjálæðið. Og á meðan vinnur Bjarni eins og hestur. Gestur kærastinn hennar múttu kom svo áðan og þau verða fram á annað kvöld (útskrift á morgun) og fara svo til Ottawa og verða þar um jólin.



Ég hendi svo inn myndum frá útskriftinni við tækifæri,

-Lizzy

Skrifað 16.12.2008 kl. 8:37 af Betu

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.12.2008

DONE!





Skrifað 11.12.2008 kl. 13:27 af Betur

Bein slóð á færslu

15 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.12.2008

Bráðum koma blessuð jólin

Sæl verið þið,

Langt síðan við höfum bloggað, sem má annars vegar skýrast af því að Beta hefur ekki haft neinn tíma og svo letin í mér. Allavega þá er þessi síðast mánuður hjá mér bara búinn að vera ansi ljúfur, þótt að það hafi komið inn miklar vinnutarnir hjá mér. Það markverðasta er kannski:

  • Skellti mér á NFL leik í byrjun nóvember með Kidda Magg
  • Ég átti 24 ára afmæli í lok nóvember
  • Thanksgiving var einnig í lok nóvember
  • Beta varð svo kvart aldar gömul núna 2. des.
  • Svo komu Gunni Þór og Orri í heimsókn núna í síðustu viku og voru fram á sunnudag. Sem var bara ágætt fyrir mig og Betu. Því ég var með strákunum öll kvöld og um helgina, og hún fékk frið til þess að læra.
Ætla ekki að hafa þetta langt en ég henti inn myndum fá þessum síðasta mánuði. Svo megið þið alveg eiga von á öðru bloggi fljótlega því Beta er að klára skólann núna í kvöld þannig að hún hlýtur að koma með eitthvað.

Svo fer bara að líða að því að við komum heim, reyndar ekki fyrr en á Þorláksmessu. En okkur hlakkar allavega til að koma heim og sjá fjölskyldu og vini.

Kommenta svo!

Þangað til næst,
Bjarni

Skrifað 11.12.2008 kl. 11:03 af Bjarna

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 46
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 98255
Samtals gestir: 41827
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 03:33:55