Blogg

23.1.2009

We are back!

Jæja, jæja ætli það sé ekki kominn tími á eins og eina færslu! Ég er búin að vera á leiðinni að henda inn færslu ansi lengi það er bara ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. En nú sit ég ein heim með flensu og ætti því að hafa tíma til að skella inn nokkrum línum og myndum.

Við Bjarni komum sem sagt aftur út þann 11.jan og svo var það bara harkan sex daginn eftir (literally þar sem ég þarf alltaf að vakna 6) og mætt snemma til vinnu. Ég er sem sagt byrjuð að vinna aftur hjá JP Morgan í sömu deild og ég var í síðasta sumar, credit portfolio trading. Vinnan hjá mér hefur farið frekar hægt af stað þar sem það tekur alltaf svo langan tíma að komast "inn í kerfið" í svonu stóru fyrirtæki. Ég er enn þá að bíða eftir leyfum til að fá aðgang að þessu og hinu sem getur verið frekar pirrandi en ég reyndi bara að njóta þess að vera ekki of busy og fylgjast með hvað aðrir eru að gera, jú eða lesa. Annars líst mér alveg rosalega vel á þetta allt saman þó að það sé svolítið skrítið að vera allt í einu orðin fullorðin og vera "bara" að vinna!!!!

Það er allt gott að frétta af Bjarna líka. Hann er bara á fullu í vinnunni sinni, náði reyndar að krækja í þessa bévítans flensu á mánudeginum og auðvitað tókst honum að smita mig sem er alls ekki nógu gott (jú nema kannski fyrir ykkur sem nennið að lesa þetta blogg :) Við erum nú ekki búin að vera mikið að bralla síðan við komum aftur nema vinna og svo skella okkur í ræktina. Það er nú líka ekki mikill tími aflögu þegar maður vinnur 7 til 7 og svo ræktin (þegar maður nennir, jú eða drinks eda út að borða) þannig að maður er komin heim um 9 leytið og þá er aðeins 1,2 tímar þangað til maður er komin upp í rúm aftur. Og þá á ég eftir að taka af þessum tíma the usual "nethring" (gmail, facebook, íslenskar fréttir og e.t.v nokkur blogg) sem er algjört möst en getur verið fáránlega tímafrekt (sérstaklega facebook, ARG! Heheheh). En hins vegar finnst mér mjöööög sniðugt að allar svona "persónulegar netsíður" séu læstar í vinnunni þannig að maður er ekkert að eyða vinnutímanum í neitt kjaftæði....hmmmm spurning um að innleiða þetta í íslensk fyrirtæki....ég yrði kannski ekki alveg sú vinsælasta.......hvað finnst ykkur?!?

En þó að maður hafi lítinn tíma á virkum dögum þá er alveg YNDISLEGT að vera með helgarfrí!! Guð, get bara eiginlega ekki líst því hvað það er ÆÐISLEGT!!!! Við Bjarni kíktum aðeins út á lífið á föstudeginum og svo var laugardagurinn algjör slökun. Á sunnudeginum fórum við svo til New Jersey að horfa á undanúrslitin í ameríska fótboltanum heima hjá vinnufélaga Bjarna. Ég var mjööög stollt af sjálfri mér, náði að horfa á HEILAN leik og náði svona meiri hlutan af því sem var að gerast, vúhúúú. Það þarf sko alveg effort til að breytast í Kana skal ég segja ykkur! Talandi um Kanann í mér....ég get nú ekki skrifað langa færslu án þess að minnast einu orði á hann Obama en eins og alþjóð veit var inauguration day (maður er alltaf að bæta við orðaforðann sinn, hahaha) fyrir 2 dögum. Markaðurinn var bara alveg dauður í nokkra tíma og allir að horfa á beina útsendingu sem var bara gaman. Reyndar var mikið sjónvarpsgláp í vinnunni líka í síðustu viku þegar flugvél nauðlenti í hudson ánni eins og allir vita, alveg ótrúlegt kraftaverk að allir hafi komist lífs af! Svo á mánudaginn var Martin Luther King day og þá er markaðurinn lokaður sem þýddi að ég eyddi öllum deginum í að versla, ummmmmm.

Ég er búin að henda inn nokkrum myndum frá Íslandsförinni sem var eins og alltaf ÆÐISLEG Í ALLA STAÐI (nú fyrir utan smá ælupest). Jólaboð á eftir jólaboði og svo endalaust djamm, matarboð, saumaklúbbar og hittingar. Mikið rosalega var gaman að hitta alla og þá sérstaklega fyrir Bjarna sem hafði ekki komið heim í ár. Nú er bara að byrja að spara og koma í heimsókn því við erum allavega ekki á leiðinni heim í heimsókn aftur á næstunni!!



brunettes vs. blondies


Knús frá veikilíussi

P.S. Verð aðeins að fá að tjá mig um þessi mótmæli hérna heima. Mér finnst mjög gott að fólk sé að mótmæla ef það vill það og um að gera EN HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞESSA F****** HÁLFVITA SEM ÞURFA AÐ VERA AÐ EYÐILEGGJA HLUTI OG RÁÐAST Á LÖGREGLUNA!?!!?!? Skil ekki svona hálfvita skap, svo auðvitað ratar þetta beint í fjölmiðla og sérstaklega erlendis þá er bara fjallað um þessaa örfáu (ok kannski örfáu en ekki meirihluta alla vega) drullusokka og fólk hérna úti heldur bara að svona hagi allir Íslendingar sér! ARG!!!!!!!!!!

P.P.S. Einhvern veginn var Bjarni ekki alveg jafn duglegur á myndavélinni og ég og því mikið af myndunum bara gelgjumyndir frá mér en lítið af myndum af honum og vinum hans emoticon




Skrifað 23.1.2009 kl. 3:07 af Betu

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 42
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 62
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 98476
Samtals gestir: 41903
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 23:21:27