Blogg

21.4.2009

Gesta update

Yo yo. Loksins gef ég mér tíma til að setjast niður og blogga, LOKSINS.

Það er búið að vera nóg að gera hérna á Upper East. Fyrst kom Elín fótboltagella í heimsókn og útnefni ég hana hér með uppáhalds gestinn minn. Hún var ekkert að stressa sig yfir að túristast eða versla heldur vorum við bara í kózýheitunum. Drukkum bjór í sólinn í Soho á laugardeginum og kúrðum upp í sófa, hámuðum í okkur nammi og horfðum á video bæði á föstudagskvöldið og á sunnudeginum emoticon

Ella Franz

Á laugardagskvöldinu var okkur stelpunum boðið í mat til Jóhönnu Maggýjar en hún var a flytja í yndislega íbúð rétt hjá okkur. Þar fengum við æðislegan mat og góða drykki og kíktum svo í smá klúbbastemningu seinna um kvöldið. Alltaf gaman að taka smá "girls night out" emoticon


Ummm langar í þennan mat aftur núna!

Næsti gestur var lærdómshesturinn hún Jóhanna Matlab-verkfræðiskvísa. Hún er að læra í út í LA og millilenti hjá okkur eftir að hafa kíkt heim til Íslands í spring break. Við náðum að taka svaðalegan powertúristahring á þetta á laugardeginum og skoðuðum bara allt sem er hægt að skoða í New York á met tíma (kannski ekki allt, en massa mikið ;). Við kíktum svo á tónleika með Emilíönu Torrini sem var voða gaman. Frekar fyndið samt að fara á tónleika með Íslendingi hérna úti og ég sem hef aldrei farið á tónleika með henni heima. Fórum einmitt líka á Sprengjuhöllina um daginn.......vinum mínum hérna úti finnst bara fyndið að ég sé alltaf á  "Icelandic concerts" (og ég sem fer aldrei á tónleika heima....).


Á E.T. tónleikunum

Um páskana komu svo turtildúfurnar og verðandi foreldrarnir Pointný og Bjammi (Oddný og Bjartmar). Oddný lét ekkert "smá" bumbu halda aftur að sér og óð úr einni búðinni í aðra og gerði stórinnkaup á litla krílið. Þau voru hjá okkur í alveg viku svo við náðum að gera fullt skemmtilegt saman. Fórum t.d. á NBA leik sem var rosa stuð (þó leikurinn hafi nú reyndar ekki verið neitt spennó í sjálfum sér).


Hvílík paramyndataka

Elín kom svo aftur í heimsókn yfir páskahelgina og settum við 5 örugglega met í súkkulaðiáti þessa helgina og vil ég þakka öllum þeim sem sendu mér íslensk nammi/páskaegg kærlega fyrir! Ég á enn þá smá eftir emoticon  Á laugardagskvöldinu var okkur boðið í íslenska afmælisVEISLU hjá Ólöfu og Jóhönnu Maggý. Þær snúllur voru með dýrindis veitingar og geðveika bollu og endaði kvöldið í gítarstemmningu og flöskustút, ekki slæmt!


Það var sko litaþema í tilefni komu sumarsins í partýinu....vá hvað við erum kúl.

Jæja, þá held ég að ég sé búin að telja alla gestina....loksins emoticon  Foreldrar Bjarna koma svo um næstu helgi og verða í 10 daga svo nóg verður um efni í næsta blogg emoticon

Knús og kram

-Lizzy íþróttaálfur

P.S. Heyrst hefur að heitasta parið á upper east sé að hugsa sér til hreyfingar og Murray Hill sé næsti áfangastaður, meira um það síðar............................

Skrifað 21.4.2009 kl. 5:17 af Betu

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 46
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 98255
Samtals gestir: 41827
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 03:33:55