Blogg
30.5.2009
Meistarína
Loksins komnar inn myndir frá útskrift. Helgin var hreint út sagt ÆÐISLEGT Í ALLA STAÐI. Við Bjarni, Sigrún, Nanna og pabbi keyrðum upp eftir á föstudagskvöldinu. Mamma, Steinunn og Helga (leynigestur!) komu svo keyrandi frá Ottawa á laugardagsmorgninum. Á laugardeginum var ORIE (Operation Research and Information Engineering) útskriftin (fjármálaverkfræðin er innan þeirrar deildar). Á sunnudeginum var svo útskrift hjá öllum skólanum.


Knús
-Die Meister
-Die Meister
P.S. Pabbi, Nanna og Sigrún voru bara að fara heim til Íslands áðan eftir gott NYC chill. Sit hér, háma í mig bingókúlur og er strax farin að sakna þeirra :/ Set inn fleiri myndir frá þeirri heimsókn næst þegar ég nenni........
8.5.2009
Tengdó í heimsókn
Hæ hæ!


Fordrykkur HEIMA
Kossar og knús
-Elísabet
Ákvað að setja inn smá update eftir skemmtilega heimsókin frá Lilju og Jóni a.k.a. the in-laws (shit hvað það olli miklum misskilningi, allir héldu að ég væri gift eða alla vega trúlofuð, hahaha). Þau komu í 10 daga heimsókn þannig að það var sko nægur tími til að gera fullt af skemmtilegum hlutum. Fórum meðal annars í æðsilegan hjólatúr um Manhattan í geðveiku veðri:

Brooklyn Bridge Hudson River
Það vildi líka svo SKEMMTILEGA til að L&J voru akkúrat í heimsókn þegar við BJ ákváðum að flytja
Flutningarnir gengu eins og í sögu og ég bara hreinlega veit ekki hvernig við Bjarni hefðum meikað þetta án þeirra!! Lilja var pökkunarstjóri meðan Jón var aðal burðarmaður. Og jiiiiiiiiiiiiiiiiiii hvað ég ELSKA nýju íbúðina okkar mikið. Hún er sem sagt á hverfi sem heitir Murray Hill og er svona meira miðsvæðis. Upper East var reyndar alveg yndislegt hverfi en það er aðalega íbúðin sjálf sem er svo æðisleg. Alveg himin og haf milli hennar og litlu holunnar sem við bjuggum í.

Fordrykkur HEIMA
Það var nú (sem betur fer fyrir þau gömlu) mikið brallað annað en flutningastúss þessa daga sem þau voru hérna. Við fórum m.a. í óperuna, á Broadwaysýningu og í Carnegie Hall á klassíska tónleika enda Lilja menningargúru #1. Sem betur fer slapp ég þó við safnaflóðið en hún og Jón þræddu öll söfn borgarinnar á meðan við BJ vorum í vinnunni
Annars var alveg yndislegt að fá settið í heimsókn enda dekrað svoleiðis við mann að það var engu líkt!
Kossar og knús
-Elísabet
Flettingar í dag: 61
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 44
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 98433
Samtals gestir: 41889
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 23:55:23

