Blogg
9.7.2009
Júní
Dömur mínar og herrar.
Ég veit að þið eruð búin að bíða spennt eftir þessu, júní mánuður í máli og (aðalega) myndum gjörið þið svo vel:

Kepptum einn laugardaginn í beer pong móti. Þetta var góðgerðarmót þar sem helmingur skráningargjalds rann til rannsókna á brjóstakrabbameini. Team ICELAND stóð sig bara nokkuð vel (miðað við litla reynslu ;) og vorum við Bjarni mjög sátt með daginn. Atvinnumennirnir Kim og Sean (á myndinni) komust hins vegar töluvert lengra en við enda alvöru atvinnumenn hér á ferð!

Tvö pör kíktu í heimsókn til okkar í júní án þess að gista hjá okkur. Fyrst komu móðursystir hans Bjarna hún Steina og maðurinn hennar Palli. Svo komu handboltahetjan Mr. Atlason og frúin hans hún Guðrún. Því miður vorum við ekki alveg jafn heppin með mat þegar við fórum út að borða með unga parinu. Eins góð og pizzan var voru hamborgarnir slæmir. Þeir voru BARA með gráðosti!!!! Og ekki eins og það hafi staðið blue cheese á matseðlinum, heldur eitthvað allt annað sem við skildum ekki. Guðrún var sú eina sem borðaði gráðost en við hinum reyndum að skafa hann af. Ég reyndi að bóna borgarann með servéttunni minn, tróð tonni af frönskum á milli og hálfri flösku af tómatsósu......en allt kom fyrir ekki......gráðostabragðið bara fór ekki. Ég var því bara að láta frönskurnar duga það kvöldið

Bjarni Beckham er búin að vera hörkuduglegur í bolta í sumar. Leikur 1x í viku en þessir kappar þurfa víst ekkert að æfa, eru svo góðir. Stundum kemur Ms. Beckham með en þá bara til að sóla sig og sjá aðra.

Þó að ég sé ekki í boltanum með Bjarna þá þýðir ekkert að sitja við og safnar spiki. Ég er búin að vera "rosa dugleg" í útihlaupum upp á síðkasti. Sakna reyndar að hafa ekki Central Park hliðin á mér en í staðinn hleyp ég meðfram East River. Það sem hefur haldið mér við var J.P. Morgan Corporate Challenge, nokkurs konar kvennahlaup jú eða glitnis maraþon. Hlaupið var stóran hring í Central Park og markmið mitt var að vinna sessunaut minn (þessi lengst til vinstri á myndinni) og ÞAÐ TÓKST
Því miður var engin mynd tekin af sigurvegaranum þetta kvöld svo mynd af vinnufélögum mínum verða að duga. Reyndar er það almennt talið að lógóið fyrir hlaupið hafi verið gert eftir mér (þið sjáið hvað stelpan á myndinni er hávaxin og flott
)

Kíktum í íslenskt pulsupartý til Jóhönnu Maggýar og Ólafar. JM var að passa íbúð vinafólks sem var með þessum dýrindis svölum sem grillað var á og setið úti fram eftir kvöldi. Því miður tókst okkur að delete-a flestum myndunum frá þessu kvöldi svo ég varð að stela einni pylsu/pulsu mynd af netinu.

Tvö pör kíktu í heimsókn til okkar í júní án þess að gista hjá okkur. Fyrst komu móðursystir hans Bjarna hún Steina og maðurinn hennar Palli. Svo komu handboltahetjan Mr. Atlason og frúin hans hún Guðrún. Því miður vorum við ekki alveg jafn heppin með mat þegar við fórum út að borða með unga parinu. Eins góð og pizzan var voru hamborgarnir slæmir. Þeir voru BARA með gráðosti!!!! Og ekki eins og það hafi staðið blue cheese á matseðlinum, heldur eitthvað allt annað sem við skildum ekki. Guðrún var sú eina sem borðaði gráðost en við hinum reyndum að skafa hann af. Ég reyndi að bóna borgarann með servéttunni minn, tróð tonni af frönskum á milli og hálfri flösku af tómatsósu......en allt kom fyrir ekki......gráðostabragðið bara fór ekki. Ég var því bara að láta frönskurnar duga það kvöldið

Við lentum í rosa skemmtilegri og óvæntri helgi þegar við kynntumst Jóni og Salome, sem voru í heimsókn í borginni ,í gegnum Kidda Maggggg. Fullkomin blanda af lúksus tani, heitapottsstemmar, góðum mat og hressleika á dansgólfinu.

Ég fór í mitt fyrsta babyshower í júní. Brynja dúlla sem er að vinna með mér hélt þessa svaðalegu veislu með hjálp fjölskyldu og vina. Það var ekkert smá gaman að upplifa þetta svona "american style", fullt af barnaskrauti (þar á meðal bleyjukaka), geðveikar veitingar og fylgst með verðandi móður opna allar gjafirnar.

Þegar maður er í djamm-dans-stuði þá er sko ekki amalegt að þekkja þessar tvær! Ólöf og Jóhanna Maggý eru aðalpíurnar í Meatpacking og kvöldið klikkar aldrei þegar maður fer út með þeim. Á seinni myndinni erum við í opnum geðveikum blæjubíl (Bjarni er fram í) að keyra á milli skemmtistaða um miðja nótt með prómóter á skemmtistað. Bara stuð
Kim elskan mín flutti í júní. Við Bjarni hjálpuðum henni að sjálfsögðu og kíktum m.a. með henni í afmeyjunarferð í IKEA (hún hafði aldrei áður farið í IKEA). Keyptum fullt af drasli eins og sést á myndinni. Ég vil sérstaklega benda á fyrstu plöntu heimilisins, þessi tegund heitir "money tree" (já ég valdi hana partially út af nafninu ;) en líkist satt að segja rosa mikið hassplöntu hérna í stofunni okkar, hahahaha.

Við þríeykið (ég, BJ og Kim) fórum á Beyonce tónleika í Madison Square.Tónleikarnir voru í einu orði sagð GEEEEEEÐVEIKIR. Ég á hreinlega engin orð um það hversu flott, æðisleg, geðveik, sexy, hæfileikarík þessi sönkona er!!! "Diva is the female version of a hustler..." Og viti menn, hözzlerinn sjálfur mætti á svæðið!! Kim sagði að Bjarni hafði öskrað eins og lítil skólastelpa þegar Jay-Z mætti á sviðið og ekki var ég skárri. Var með vöðvabólgu í öxlunum eftir þetta kvöld, var svo spennt allt kvöldið, þetta var svo mikil geðveiki!!!

Við BJ hélum HEIL TVÖ matarboð í júni. Geri aðrir betur! (Hmmmm ætli flestir hafi ekki gert betur
) Fyrst komu Hildigunnur og Ásgeir, og reyndar komu Baldur og Bree seinna um kvöldið en ég gleymdi að taka mynd af þeim. Svo komu JM og Ms. Pinky og héldu þær varla vatni yfir dýrindis kjúllaréttinum sem BJ kokkur framreyddi að hætti hússins.

Ég skrapp yfir til Kanada í lok júní þar sem Steinunn var að útskrifast úr Glebe High School. Átti að fara á fimmtudagskvöldi en flugvélin mín bilaði og við þurftum að snúa við og ég endaði á því að deila hótelherbergi með ókunnugri konu. Ég var rosalega svekkt þar sem ég hélt ég myndi missa af útskriftinni sem var morguninn eftir. Flugið morguninn eftir gekk hins vegar eins og í sögu, ég var fyrst út úr vélinni, fékk töskuna frekar snemma og beint í leigubil og mætti 2 mínútum áður en athöfnin byrjaði. Var svo fáránlega á réttum tíma að ég náði ekki einu sinni að pissa áður en athöfnin byrjaði en sem betur fer ferðaðist ég í útskriftardressinu. Steinka fékk auðvitað fullt af verðlaunum, þar á meðal fyrir góðar einkunnir, best í leikfimi og "New Canadian Leadership Award" sem voru sérstaklega búin til fyrir hana!! Útskriftarveislan var síðan haldin á laugardeginum í íslenska sendiráðinu í Kanada, ekki slæmt.

Restin af helginni fór svo í æðislegt chill með fjölskyldunni (vantaði bara Sigrúnu mína). Pabbi kom auðvitað með tonn af íslensku nammi sem við stelpurnar hökkuðum í okkur. Ég fór svo ekki heim aftur fyrr en um mánudagskvöldið en mánudagurinn fór í að gera Steinunni ready fyrir the big night, PROM! Ætli skvísan hafi svo ekki verið valin PROM QUEEN
Ég tel mig eiga smá heiður í því hversu vel stúlkan lítur út enda í kjól sem ég keypti (reyndar valdi hún hann sjálf), með brúnkukremið mitt og svo sá ég um hárgreiðsluna!

Restin af helginni fór svo í æðislegt chill með fjölskyldunni (vantaði bara Sigrúnu mína). Pabbi kom auðvitað með tonn af íslensku nammi sem við stelpurnar hökkuðum í okkur. Ég fór svo ekki heim aftur fyrr en um mánudagskvöldið en mánudagurinn fór í að gera Steinunni ready fyrir the big night, PROM! Ætli skvísan hafi svo ekki verið valin PROM QUEEN
Jæja, vona að ég hafi slegið á smá bloggþorsta, endilega kommentið svo snúllurnar mínar
Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 44
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 98384
Samtals gestir: 41876
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 11:07:42