Blogg

19.8.2009

Júlí 2009

Yo yo!

Lööööngu kominn tími á eins og eitt júlí-blog-update!!



Við skelltum okkur yfir til Boston yfir 4th of July helgina og það var ekkert smá skemmtileg ferð. Gistum hjá Þórunni Stellu en hún var að vinna í Boston yfir sumarið. Stúlkan tók ekkert smá vel á móti okkur og hreinlega dekraði við okkur alla helgina (ég fékk meira að segja að sofa upp í hjá henni ;). Eitt af því sem stóð upp úr var snilldar kayak-ferð og auðvitað heimsókn í MIT til Sigga. Annars var gott jafnvægi milli túristastöffs og djamms og kom maður alveg endurnærður aftur til New York eftir smá "sveitasælu" emoticon

 
Það verður nú að skrá í sögubækurnar mín fyrstu kynni af baseball, eða réttara sagt softball. Josh vinur okkar hélt upp á afmælið sitt einn laugardaginn upp í Central Park með því að slá til heljarinnar softball veislu, þar sem spilað var fram eftir degi, borðað barbecue og drukkið bjór. Allaveg fullkomin afmælisdagur (alla vega á amerískan mælikvarða). Ég verð nú bara að segja að ég stóð mig bara nokkuð vel (miðað við aldur og fyrri reynslu) þó að ég "throw like a girl" emoticon Annars er Bjarni alveg hooked á þessu softball dæmi og keppir að meðaltali einu sinni í viku með strákum úr vinnunni.

   
Sumarið kom loksins í júlí! Við Bjarni erum því búin að vera dugleg að worka tanið. Búin að fara nokkrum sinnum í Central Park, en þar er m.a. þessi humongos sundlaug sem ég er bara nýbúin að frétta af en hún er opin fyrir alla og kostar ekki neitt og þarf af leiðandi troðinn af fólki. Við höfum líka farið 2 ferðir á ströndina. Í fyrra skiptið fórum við á Jones Beach með Kim, Heather og Hrabba en í seinna skipti niður til Coney Island bara við tvö. Annars er minn uppáhalds tan-staður bara gamla góða rooftoppið okkar, enda hentugt að geta bara skotist upp án mikillar fyrirhafnar.


 

Hótel B&B fékk aðeins einn gest í júlí (reksturinn er klárlega að finna fyrir kreppunn) en Hrabbi, vinur hans Bjarna úr rafmagnsverkfræðinni kom í heimsókn. Krúttuparið Gummi og Brynja komu líka í heimsókn, svona rétt áður en erfinginn mætti á svæðið, en þau eignuðust lítinn dreng í næsta húsi nokkrum dögum seinna (NYU spítalinn er hinum megin við götuna hjá okkur), en meira um það í komandi ágústfærslu.......

 
Ég átti svo mitt árlega date með Beckham ekki fyrir svo löngu. Orðið svoldið langt síðan við hittumst síðar og var því mikil spenna í loftinu. Misstum reyndar af upphitun og þjóðsöngnum mér til mikillar grenju en Becks bætti það upp fyrir mér með því að fara úr að ofan eftir leikinn emoticon

 
Við létum okkur ekki nægja að fara á einn fótboltaleik í júlí heldur skelltum okkur í road trip með Hildigunni og Ásgeiri niður til Baltimore á stórleikinn Chelsea - AC Milan. Þetta var sko alvöru leikur (enginn amerí ku-smástelpu-bolti eins og fyrri leikurinn), enda leikvangurinn troðfullur með yfir 90þús áhorfendur. Ég verð sérstaklega að gefa Drogba credit en hann skoraði fyrsta markið sem var alveg geeeeeðveikt en ég hef aldrei fílað þann leikmann.

 

Svo var auðvitað gert nóg af "the usual" í júlí, þ.e.a.s. djammað og verslað emoticon

Júlí kveður í bili.....

Skrifað 19.8.2009 kl. 12:27 af Betu

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 46
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 98255
Samtals gestir: 41827
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 03:33:55