Blogg
1.9.2009
Heimsókn Bjarna Þórs og Péturs
Ætli það sé ekki komið að mér að blogga.
Allt gott að frétt af okkur Betu. Loksins er veðrið orðið viðráðanlegt eftir ansi heitan seinni hluta ágústs, þar sem maður gat varla verið inni í íbúð án þess að vera með loftkælinguna á full steam.
Allt lítur út fyrir að september verði bara ansi góður. Næsti mánudagur er Labor Day, verkalýðsdagur þeirra ameríkana, sem þýðir að við erum með langa helgi. Við Beta ætla að skella okkur í rólegheitar ferð upp til Portsmouth, New Hamshire. Við forum með Sean&Kim núna á föstudaginn og komum aftur á mánudaginn. Meira um það síðar.
Svo er von á góðri heimsókn í lok mánaðarnis, því þá kemur Guðrún systir og Heiðrún í heimsókn. Það verður nóg brallað þegar þær koma! Meðal annars erum við að fara á U2 á Giants Stadium.
En þá er komið að málum málanna; Bjarni Þór og Pétur stórvinir mínir komu í viku heimsókn í byrjun ágúst. Ferðin var mest öll plönuð og náðum við að gera ansi mikið meðan þeir voru hérna. Það var meira segja kvartað í farastjóranum að það gæfist ekki nægur tími til þess að komast í sturtu milli dagskrárliða.
Ég er búinn að setja slatta af myndum og mikið af myndatexta, þar sem menn geta fylgst í detail hvað var gert.
En í grófum dráttum þá komu fórum við í grillpartý til yfirmannsins míns í New Jersey

Fórum á AC/DC tónleika

Hjóluðum um Manhattan þvera og endilanga og kíktum á þessa helstu staði.

Kíktum í innflutngingspartý

Tókum því rólega á sunnudeginum og kíktum á American Natural Museum of History og Chinatown

Strákarnir fóru í outlet mall. Þeir vildu meina að þeir hefðu verslað svo mikið að þetta hefði verið álíka og góður stimulus pakki frá Obama.

Kíktum á NY Mets spila

Þeir versluðu meira í Soho og kíktu í bus
tour.
Fórum á Depeche Mode tónleika, sem voru hreint út sagt bilaðir!!! Við skemmtum okkur konunglega.

Síðasta kvöldið fórum svo út að borða á STK í Meat Packing District. Við Beta verum vinsamlega beðin um að geyma seðlaveskin heima það kvöldið! Við fengum ekki einu sinni að sjá reikninginn. Takk fyrir okkur piltar.


Ferðin heppnaðist bara vel í alla staði og allir nutu sín. Hlakka til að hitta ykkur aftur um jólin drengir!
Muna svo að kvitta!
Bestu kveðjur,
Bjarni

