Blogg

5.10.2009

September

Jæja.......nú er september búinn......LOKSINS!!! Eins yndislegur, æðislegur og rólegur september var í fyrra þá var hann algjörlega the opposite núna, þ.e.a.s. CRAZY!! Var nefninlega í 5 vikna training í vinnunni og það var nú bara ekkert djók. Skóli frá 7 til 7, próf alla mánudaga og föstudaga, verkefni og kynningar. Þetta var nú bara gott slap in the face hvað ég er ánægð að vera búin með skóla emoticon  og hversu æðislegt það er að vera með helgarfrí!!!!!!! En nú er þessi keyrsla búin og við tekur hið vanalega líf aftur.

Annars var samt ansi margt skemmtilegt upp á teningnum í september þegar færi gafst til og má með sanni segja að þetta hafi verið quality over quantity.



  
Fórum í road trip upp til New Hapmshire með Kim og Sean yfir Laborday weekend. Þar var chillað á ströndinni, farið í siglingu, breweries og elsta banka í USA (sem er veitingastaður í dag).

  
Jakob sætabrauð kom í heimsókn til okkar á 34th stræti að horfa á Man Utd - Tottenham. Ég býð honum reyndar ekki aftur í heimsókn þegar Tottenham er að spila........greinilega ekki happa! (Enda Liverpoolmaður hér á ferð)



Frikki vinur hans Bjarna og Marín kærasta hans komu í heimsókn yfir helgi frá Boston. Þau voru ansi öflug að túristast og djamma inn á milli með Bjarna en því miður var ég aðeins of mikið lærinörd þegar þau komu.......bæti úr því næst þegar þau koma!!

Heimsókn mánaðarins var svo þegar blond-rúnurnar, Guðrún og Heiðrún komu í helgarferð. Það var náttúrlega algjör snilld að fá þesar elskur í heimsókn og þó að það hafi verið ansi mikið að gera hjá mér í "vinnunni" þá náðum við alveg góðum quality time saman emoticon Hápunktur ferðarinnar var án efa U2 tónleikar á fimmtudagskvöldinu. HVÍLÍK GEEEEÐVEIKI SEM ÞAÐ VAR....ER ENN ÞÁ Í SÆLUVÍMU!!!!!!!! Var reyndar ekki alveg jafn hress að þurfa að vakna nokkrum tímum eftir að við komum heim og fara í próf sem byrjaði 7 um morguninn.......SÆLL......en það var samt alveg ótrúlegt hvað sá dagur var fljótur að líða (ótrúlegt hvað þessi 5 hour energy shot virka vel ;) svo var bara tekinn smá lúr og mín ready aftur út á lífið. Í þetta sinn fórum við á alveg æðislegan veitingastað með Sigríði Völu, Gauta og co. en þau höfðu einmitt komið til NYC til að fara á U2 (reyndar annan dag en við fórum). Gellurnar náðu svo að versla vel um helgina með Bjarni tour guide #1 en aðaldjammið var svo á laugardagskvöldinu þar sem við kíktum í vinnupartý hjá mér og svo niður í Meatpacking.





 

Snilldarheimsókn, takk æðislega fyrir mig stelpur!!!! Já og líka knús og þakkir til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg við að gera lífið mitt aðeins auðveldara þessa síðustu læridaga þar sem ég gat gætt mér á íslensku eðalnammi (sérstakt knús til Helgu og uppáhalds Gunnanna minna emoticon  )


Kveð í bili héðan úr 20 stiga hita og sól emoticon  (Smá monnt í gangi, hehehehe =)



P.S. Droplaug frænka hans Bjarna og kærasti hennar Jóhann komu í heimsókn til okkar í júlí og því miður gleymdist að blogga um það í júlífærslunni. Ástæðan var sú að Bjarna tókst að save-a myndirnar frá þeirri heimsókn inn í möppunni "30 rock season 1" á desktoppinu....hmmm ekki skrítið að ég hafi ekki fundið myndirnar í júlímöppunni okkar!!!!!!! Anyways, það var rosa gaman að fá þau í heimsókn enda algjörar krúsídúllur hér á ferð emoticon



Skrifað 5.10.2009 kl. 10:25 af Betur

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 44
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 98544
Samtals gestir: 41917
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 13:35:57