Blogg
9.2.2010
Janúar
Fyrsti mánuður ársins liðinn.....kominn tími á blogg.


"Danirnir" Kiddi og Þóra komu til okkar seinni part mánaðarins. Þau höfðu aðeins meiri tíma og voru hjá okkur í rúma viku. Þau voru mjög dugleg að skoða sig um og njóta borgarinnar á daginn meðan við BJ vorum í vinnunni. EM í handbolta var á sama tíma og þau voru hérna svo það var heldur betur stuð í EM-stofunni á 34. stræti á kvöldin!! Við fórum svo m.a. á Knicks leik í MSG og kíktum aðeins út á lífið.

Okkur tókst að rækta aðeins Kanann í okkur á milli gestagangs og fórum á svaðalegt rodeo í Madison Square Garden. Ég er nú reyndar ekki mikill fan af þessu sporti (ef sport má kalla), og sérstaklega ekki eftir að ég heyrði af hverju nautin eru svona æst að ná knöpunum af sér.....það er bundið band um kynfærin á þeim sem togar í þegar einhver sest á þau....ewwwwwwwww. En vegna mikils hópþrýstings ákvað ég að skella mér og sá ekki eftir því. Þetta var hin ágætasta skemmtun og get ég því núna sagt "rodeo, check"

Við fórum líka í indverskt babyshower í New Jersey til vinnufélaga Bjarna sem var mjög skemmtileg upplifun. Veislan var haldin á indverskum veitingastað, þar sem öllu var tjaldað til og úr var hin ágætasta skemmtun. Flott borðhald með DJ sem hélt uppi stuðinu og alles. Hann spilaði indversk lög í bland við Jackson slagar...frekar fyndið að vera edrú á sunnudagshádegi að dansa með vinnufélögum Bjarna, hahhaha. Svo voru fullt af leikjum og ekki skemmdi þriggja rétta hlaðborð fyrir, ummmmmm!!

Janúar var nú heldur betur heimsóknarmánuður. Fyrst komu Adrian og Rakel í stutta helgarferð til okkar. Þessi busy tveggja barna foreldrar höfðu sko ekki tími til að stoppa of lengi, komu á föstudegi og voru farin aftur á mánudegi. Það var samt alveg ótrúlegt hvað við náðum að gera margt skemmtilegt saman, og þá sérstaklega á sviði matarlistar þar sem ófá veitingahúsin voru prófuð. Hápunktur ferðarinnr var án efa þegar Adrian bað Rakelar, en þau gistu síðustu nóttina á flottu hóteli á Time Square, awwww svaka rómó

"Danirnir" Kiddi og Þóra komu til okkar seinni part mánaðarins. Þau höfðu aðeins meiri tíma og voru hjá okkur í rúma viku. Þau voru mjög dugleg að skoða sig um og njóta borgarinnar á daginn meðan við BJ vorum í vinnunni. EM í handbolta var á sama tíma og þau voru hérna svo það var heldur betur stuð í EM-stofunni á 34. stræti á kvöldin!! Við fórum svo m.a. á Knicks leik í MSG og kíktum aðeins út á lífið.

Okkur tókst að rækta aðeins Kanann í okkur á milli gestagangs og fórum á svaðalegt rodeo í Madison Square Garden. Ég er nú reyndar ekki mikill fan af þessu sporti (ef sport má kalla), og sérstaklega ekki eftir að ég heyrði af hverju nautin eru svona æst að ná knöpunum af sér.....það er bundið band um kynfærin á þeim sem togar í þegar einhver sest á þau....ewwwwwwwww. En vegna mikils hópþrýstings ákvað ég að skella mér og sá ekki eftir því. Þetta var hin ágætasta skemmtun og get ég því núna sagt "rodeo, check"

Við fórum líka í indverskt babyshower í New Jersey til vinnufélaga Bjarna sem var mjög skemmtileg upplifun. Veislan var haldin á indverskum veitingastað, þar sem öllu var tjaldað til og úr var hin ágætasta skemmtun. Flott borðhald með DJ sem hélt uppi stuðinu og alles. Hann spilaði indversk lög í bland við Jackson slagar...frekar fyndið að vera edrú á sunnudagshádegi að dansa með vinnufélögum Bjarna, hahhaha. Svo voru fullt af leikjum og ekki skemmdi þriggja rétta hlaðborð fyrir, ummmmmm!!
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 46
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 98306
Samtals gestir: 41844
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 16:23:58

