Færslur: 2010 Maí

03.05.2010 18:42

Fyrsta London update

Heil og sæl öll sömul! Ætli það sé ekki kominn tími á eins og eitt Lundúnarblogg! Ég sem sagt flutti til London fyrir rúmri viku. Eldgosið í Eyjafjallajökli varð til þess að ég var viku lengur í New York en ég ætlaði mér og svona eftir á var ég mjög ánægð með það :) Það var frekar skrítið að mæta aftur í vinnuna eftir að ég hafði sagt bless við alla og það fannst auðvitað öllum mjööööög fyndið að eldgos á Íslandi væri þess valdandi að ég gæti ekki flutt til London á tilsettum tima. Auk þess voru ALLIR að spyrja mig hvernig ætti að segja Eyjafjallajökull eins og við var að búast og var ég m.a. beðin um að segja það á einum af morgunfundinum okkar fyrir framan stóran hóp af fólki og svo fóru allir að hlæja. Held án gríns að ég hafi sagt Eyjafjallajökull svona 50 sinnum í vinnunni yfir tvo daga!!

Atvinnuleyfid mitt rann svo út 20.apríl og ég var því í fríi tvo síðustu dagana áður en ég flaug yfir til London (eða þ.e.a.s. til Dublin og svo frá Dublin til London). Það var voða næs að fá svona ókeypis frí og nýtti ég það vel og fór m.a. með cupcakes í vinnuna mína og Bjarna :)

Ég mætti svo til London á föstudeginum fyrir rúmri viku og hitti Sid, gaurinn sem ég flutti inn fyrir og nýja roommate-inn minn Steve. Sid er nú fluttur til Afríku en Steve fer ekki fyrr en í byrjun júní og því leigjum við saman. Steve virkar mjög nettur gaur, er reyndar ekkert búin að hanga mikið með honum þar sem ég er búin að vera að vinna svo mikið og ef ég er ekki að vinna þá er ég að hanga með Íslendingum. Þarf nú eitthvað að fara að bæta úr því.....

Alla vega, fyrsta helgin var frekar róleg. Náði að hvíla mig vel, unpakka og rölta aðeins um nýja hverfið mitt og reyna að ná áttum (jiiii allar þessar litlu hlykkjóttu götur gera mig SVO ringlaða, sé ekki fram á að mastera London í bráð en geri mitt besta ;) Á sunnudeginum hitti ég svo afa og Gumma bróður hennar mömmu. Þeir voru hérna í helgarferð þar sem þeir fóru á Arsenal-leik. Ég hitti þá fyrst á Oxfordstreet svo röltum við meðfram ánni (London marathonid var einmitt i gangi thennan dag) og duttum inn i svona spilakassasal. Thar missti Gudmundur sig alveg (enda vinnur hann vid thetta!) og dro okkur afa med i fjorid. Vid profudum alveg fullt af skemmtilegum taekjum og Gummi aetti nuna ad vera kominn med nokkrar nyjar hugmyndir af taekjum til ad setja upp a Islandi. Fyndnast var thegar Gummi gaf saklausa afa gamla rafstud i einu af taekjunum, hahahaha. Vid horfdum sidan a Chelsea bursta Stoke yfir nokkrum koldum. Ad lokum var haldid a GEDVEIKAN veitingastad i Mayfair sem heitir Kai og gaett ser a OENDANLEGA godri ond ad haetti hussins. I heildina litid snilldar dagur, takk strakar fyrir mig!!!

 

Vinnuvikan var svo frekar erfid og LONG.  Mer list rosavel a thetta allt saman nema vinnutimann sem er helst til of langur fyrir minn smekk (og eg er nu von New York craziness!). Vinnan herna byrjar adeins seinna en a hinn boginn er unnid lengur fram a kvold. Dagarnir eru alltaf fljotir ad lida og vinnan er spennandi en a moti kemur ad madur hefur ekki tima fyrir mikid annad virka daga. Madur er nu lika nuna kominn yfir i Evropumarkadinn og thetta var alls ekki roleg vika,  Grikklandi i svadinu og loksins kominn almennilegur bjorgunarpakki fra EU og IMF, vonandi ad markadurinn roist nu adeins ;) Thad tekur mig um halftima ad komast i vinnuna sem er ekki slaemt thar sem eg tek bara eina lest alla leid. Annars er thad alveg otrulegt hvad sumir i vinnunni eru tilbunir ad leggja a sig i sambandi vid samgongutima en einn gaur sem eg vinn med byr i neastu 2 tima fjarlaegd, CRAZY!!!

Thessa helgina var svo Guðrún systir hans Bjarna í heimsokn hja æskuvinkonu sinni  Aldísi sem hefur búið hérna í London í um 10 ár. Alveg frábært að hanga með svona "innsider" eins og Aldísi sem skipulagði mjög skemmtilegt plan fyrir okkur alla helgina.  Á föstudeginum kíkti ég heim til Aldísar í fordrykk og íslenskt nammi þar sem við horfðum á Eurovisionmyndbandið (já, best að segja ekki neitt meira um það!) Svo héldum við á æðislegan Kínverskan stað en ég var komin heim um eitt leytið enda búin á því eftir vikuna. Á laugardeginum var svo shoppað, kokteilast, fancy dinner-istast og svo tekið "smá" tjútt á einum af klúbbum borgarinnar. Þynnkan var aðeins að flækjast fyrir mér fyrri hluta sunndagsins (og ekki skánaði hún þegar Chelsea tók Liverpool, pffff) en ég náði þó að hrissta hana af mér og hitta aðeins stelpurnar og knúsa Guðrúnu áður en hún hélt aftur heim á klakann.

 

Á sunnudagskvöldinu fór ég svo og hitti Völu vinkonu mína úr Val. Hún var hérna í helgarferð ásamt vinkonu sinni Ástríði þar sem hápunkturinn var brúðkaup hjá vinkonu þeirra. Þær gistu hjá Dísu leikkonusnilling sem býr í úthverfi London. Við borðuðum saman æðislegan HEIMALAGAÐAN mat (takk Vala) og svo kíktu stelpurnar út á lífið en ég fór bara heim.

 

Í dag er svo bank holiday, einn af fáum frídögunum hérna og ég því búin að hlaða batteríin vel fyrir vikuna.  Mestur hluti dagsins fór í að læra en ég þarf að fara í FSA próf í næstu viku til þess að fá leyfi til að trade-a á breskum markaði.  Jæja, held að það sé komið nóg af babbli frá mér í bili.

-Lizzy Londonbui

  • 1
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 8
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 122329
Samtals gestir: 50639
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:34:52